156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

föst starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.

41. mál
[18:10]
Horfa

Flm. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri. Málið flytja, ásamt þeim sem hér stendur, 11 aðrir hv. þingmenn, sem eru Bryndís Haraldsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Diljá Mist Einarsdóttir, Ólafur Adolfsson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Ágústa Ágústsdóttir, Þorgrímur Sigmundsson, Ingibjörg Isaksen, Þórarinn Ingi Pétursson, Ingvar Þóroddsson og Eiríkur Björn Björgvinsson, þingmenn úr fjórum flokkum á þingi.

Tillagan gengur út á að Alþingi álykti að fela dómsmálaráðherra að beita sér fyrir því að Landhelgisgæslan komi upp fastri starfsstöð fyrir eina af þyrlum sínum á Akureyri í samstarfi við hagaðila á Akureyri.

Tillaga þessi var síðast lögð fram á 155. löggjafarþingi en var ekki afgreidd.

Með tillögunni er lagt til að ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar hafi starfsstöð á Akureyri allt árið um kring. Auk þess sem Akureyri er miðsvæðis á landinu, er augljós tenging við sjúkraflugið í landinu sem er staðsett á Akureyri. Þar geta læknar á Akureyri mannað hluta þyrluáhafnar eins og nú er reyndin í tengslum við sjúkraflugið. Í þessu samhengi er rétt að benda á að í fjölmiðlum hefur komið fram að tveir af sex þyrluflugstjórum Gæslunnar búa fyrir norðan; í nærsveitum Akureyrar. Talið er að árlegur rekstrarkostnaður þyrlu á Akureyri sé um 500 millj. kr. og að uppbygging flugskýlis á Akureyrarflugvelli kosti 200–300 millj. kr. Nú þegar eru til staðar flugvirkjar sem geta sinnt viðhaldi auk þess sem starfsmenn í heilbrigðisstofnunum, slökkviliði og fleiri geta nýst starfseminni.

Hlutfall þyrluflugs hefur verið um 15% af heildarsjúkraflugi í landinu. Ég kem með smáleiðréttingu á textanum í þingskjalinu: Mýflug hefur sinnt um 85% af sjúkrafluginu með sínum tveimur flugvélum, en fyrir ári, eða 1. janúar í fyrra, tók Norlandair við sjúkrafluginu en sjúkraflugið er í dag um 85% í flugvélum en síðan 15% með þyrlum Gæslunnar. Í þingskjalinu má sjá mynd sem sýnir hvernig sjúkraflugið dreifðist um landið árið 2015 og hvert þyrlur Gæslunnar sóttu sjúklinga. Það sem myndin sýnir er hversu slæma eða lélega þjónustu hægt er að veita á austurhluta landsins þegar sjúkraflugi með þyrlum er einungis sinnt frá Reykjavíkurflugvelli.

Fjarlægðirnar eru miklar og veðuraðstæður með þeim hætti að til að sinna sjúkraflutningum á austurhluta landsins með sjúkraþyrlum, í þeim tilfellum þar sem erfitt er að koma sjúkraflugi við, yrði nauðsynlegt að staðsetja þyrlu á svæðinu. Það er ekki langt síðan að sjöttu þyrluáhöfninni var bætt við hjá Landhelgisgæslunni sem þýðir að það eru tvær áhafnir á vakt um tvo þriðju hluta ársins. Með því að bæta við sjöundu þyrluáhöfninni væru tvær áhafnir til reiðu 95% af árinu. Það er mikilvægt skref sem nauðsynlegt er að stíga til þess að efla björgunargetu þyrluflugsveitar Landhelgisgæslunnar.

Og aðeins um áhættudreifingu: Það er ekki skynsamlegt að hafa öll eggin í sömu körfunni þegar kemur að eldsvoða, vatnstjónum og öðrum mögulegum skakkaföllum. Að hafa allar þyrlurnar fastar á sama veðurfarssvæðinu er óskynsamlegt. Að hafa þyrlur eingöngu staðsettar í Reykjavík dreifir illa þjónustu, sérstaklega er það afleitt fyrir Norðausturland og Austurland og hafsvæði þar út af eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem ég vísaði í áðan. Með þyrlu í Reykjavík og á Akureyri mætti ná til allra landshluta á þyrlu á innan við 90 mínútum á venjulegum degi og myndi björgunarviðbragð á norður- og austurmiðum styrkjast verulega.

Aðeins um það sem hefur verið skrifað í gegnum tíðina í skýrslum og ályktunum og umræðu: Þau sjónarmið að hafa þyrlu á Akureyri hafa einnig komið fram í ýmsum skýrslum. Vinnuhópur um skipulag sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan spítala á Norðurlandi benti árið 2009 á þann veikleika sem felst í að allar björgunarþyrlur þjóðarinnar séu staðsettar í Reykjavík. Annar verkefnahópur um endurskipulagningu sjúkraflutninga taldi árið 2012 að stefna ætti að því að sjúkraflug með þyrlum og flugvélum yrði bæði á Akureyri og í Reykjavík.

Þegar byggja átti upp þyrluflota Landhelgisgæslunnar við brottför varnarliðsins 2006 ályktuðu ýmis samtök og stofnanir um að skynsamlegt væri að hafa fleiri en eina starfsstöð á landinu fyrir björgunarþyrlurnar til að stytta björgunartíma. Landspítalinn í Reykjavík benti á að í ljósi mikilvægis jöfnunar á heilbrigðisþjónustu landsmanna skyldi þyrla vera staðsett á Akureyri. Félag skipstjórnarmanna og Sjómannasamband Íslands tóku m.a. undir það. Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar hvatti einnig til þess að tryggja staðsetningu björgunarþyrlu annars staðar en á suðvesturhorninu. Samtök útgerðarmanna vildu þyrlu á landsbyggðinni til að auka öryggi og margfalda þjónustugetu. Segja má að rökin að baki þessum ályktunum gildi enn þann dag í dag.

Undanfarið hafa aðalvarðstjóri lögreglunnar á Akureyri og forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri tjáð sig um mikilvægi þess að þyrla Landhelgisgæslunnar verði staðsett á Akureyri, eftir að þyrla var staðsett á Akureyri um verslunarmannahelgina fyrir tæpum tveimur árum. Það geti jafnframt valdið jákvæðum ytri áhrifum, svo sem betri hreyfanleika sérsveitar og myndi styðja við sjúkralið og lögreglu á svæðinu.

Um samstarf við vinaþjóðir á norðurslóðum — og þetta er kannski það sem er að verða að stóru máli í dag, en var kannski ekki endilega jafn stórt í sniðum þegar sá sem hér stendur fór fyrst að ræða þetta á þingi. Á undanförnum árum hefur Atlantshafsbandalagið, NATO, lagt meiri áherslu á viðveru af hálfu bandalagsins í norðanverðu Norður-Atlantshafi til að efla styrk bandalagsins á norðurslóðum.

Að mati flutningsmanna sem leggja fram þessa þingsályktunartillögu er eðlilegt að líta til þess að á næstu árum efli íslenska ríkið getu sína til að sinna leit og björgun á hafsvæðinu í kringum Ísland. Nú þegar mikilvægi norðurslóða er að aukast er rétt að líta til þess hvernig hægt væri að styrkja þessa starfsemi hér á landi og þá jafnvel í samstarfi við vinaþjóðir innan Atlantshafsbandalagsins. Hér er rétt að líta til þess að Danir hyggjast í þessu skyni verja 1,5 milljörðum danskra króna eða um 30 milljörðum íslenskra króna. Þar er m.a. horft til þess að endurnýja þau fjögur varðskip sem þeir hafa haldið úti á Norður-Atlantshafi.

Í skýrslu forsætisráðherra um mat þjóðaröryggisráðs á ástandi og horfum í þjóðaröryggismálum, sem kom út árið 2022, kom fram að nauðsynlegt væri að leggja mat á viðbragðsgetu Landhelgisgæslunnar og gera ráðstafanir til þess að tryggja betur vöktun.

Svæðið sem Landhelgisgæslan ber ábyrgð á spannar 1,9 milljónir ferkílómetra, svæðið er nítján sinnum stærra en Ísland.

Flutningsmenn telja skynsamlegt að efla leitar- og björgunargetu á norðausturhluta landsins með því að staðsetja varanlega björgunarþyrlu á Akureyri, líkt og þekkist á höfuðborgarsvæðinu.

Freyja með heimahöfn á Siglufirði var stórt skref í að efla björgunargetu Landhelgisgæslunnar og þá sérstaklega á hafsvæðunum norðan og austan við Ísland. Nú er rétt að líta til þess að staðsetja varanlega þyrlu á Akureyri og byggja upp öfluga starfsstöð á Norðurlandi.

Þegar varnarliðið yfirgaf Ísland árið 2006 dró verulega úr björgunargetu hér á landi með þyrlum, en á sínum tíma voru fimm þyrlur staðsettar á Keflavíkurflugvelli. Mikil vinna hefur verið lögð í að styrkja þetta viðbragð. Flutningsmenn telja skynsamlegt að efla björgunargetu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar á Norður- og Austurlandi og á hafsvæðunum þar út af með því að staðsetja björgunarþyrlu varanlega á Akureyri í góðri samvinnu við vinaþjóðir okkar.

Skynsamlegt væri og í anda opinberrar stefnumörkunar og byggðafestu að byggja upp leitar- og björgunargetu á norðurslóðum við Eyjafjörð. Þar ætti að staðsetja sjúkra- og björgunarþyrlu.

Þegar málið var fyrst tekið upp hér í þinginu fyrir rúmu ári komu mjög góðar umsagnir við málið, eitthvað um 20 umsagnir, mjög fínar umsagnir og verður spennandi að sjá hvernig þær munu líta út núna. En þar er eitt atriði sem ég kom lítillega að í greinargerðinni hér áðan, þ.e. svona almenn umræða um að vekja athygli á mikilvægi þessa fyrir sérsveitina á Akureyri sem er staðsett þar. Þeir telja gríðarlega mikilvægt að þyrla verði staðsett á Akureyri til að sveitin geti komist hratt og örugglega á vettvang. Fólk gerir sér ekki grein fyrir að það er verið að nýta ýmis tæki og tól til að koma sér á staðinn og þetta er eitt af því. Vakin er athygli á þeirri umsögn af hv. þingmönnum. Þar er verið að fjölga sérsveitarmönnum. Í þeim umsögnum er verið að ræða um mikilvægi þess, þegar alvarlegir lífshótandi áverkar eru á fólki, að veita slösuðum sérhæfða lífsbjargandi aðstoð á um klukkustund til að auka lífslíkur og batahorfur umtalsvert. Með þessum hætti er mögulegt að komast á miklu skemmri tími að alvarlegum slysum. Sjúkraflugið virkar vel og hefur gert mikið en á mjög stórum landsvæðum eru oft engir sjúkraflugvellir til að taka við sjúkraflugvél og með þyrlum væri hægt að komast mun hraðar á vettvang.

Mig langar líka að benda á að á síðasta kjörtímabili fengu hv. þingmenn Norðausturkjördæmis fína kynningu á rannsókn sem var unnin af Birni Gunnarssyni og fleirum, sem var a.m.k. á þeim tíma yfirlæknir sjúkraflugs á Akureyri, og hann var með mjög nákvæma rannsókn á því hvar væri hentugast að staðsetja þyrlur í landinu. Ég vek athygli á þeirri rannsókn. Það var raunverulega Möðrudalur sem ætti að vera staðurinn fyrir þyrlu tvö ef það væri bara hugsað út frá slysunum, mitt á milli Akureyrar og Egilsstaða, það var nákvæmlega þar mitt á milli. En það sem er kannski hér inni í myndinni er að allir innviðir, mannskapur og annað til að sinna rekstri björgunarþyrlu eins og Landhelgisgæslan rekur, eru nú þegar til staðar á Akureyri. Það er mjög mikilvægt þegar verið er að byggja undir svona mál.

Það kemur fram í rannsóknum að ef nýrri bækistöð yrði bætt við á Akureyri í þyrlurekstri Gæslunnar væri hægt að ná til yfir 94% af landi og miðum á innan við 60 mínútum. Það er ótrúlega mikil bót frá því sem við þekkjum í dag. Það er síðan umræðan um geo-pólitíkina og annað sem hefur gjörbreyst á undanförnum misserum og ég held að það muni ýta mjög undir að þetta mál verði að veruleika í fyrirsjáanlegri framtíð, þ.e. þessar gríðarlegu breytingar sem eru að verða á okkar svæði út frá varnar- og öryggismálum. En stóra verkefnið er náttúrlega að við sinnum líka í tengslum við þau verkefni leit og björgun í Norður-Atlantshafinu, eins og ég kom inn á áðan, og það er veigamikið og stórt atriði. Það er síðan eitthvað til að hugsa um, fyrst við erum að ræða þetta, að það þarf að mínu viti að móta nýja stefnu og taka þetta mjög markvisst varðandi þyrlurekstur Gæslunnar; kaup, leiga, hvernig þyrlurnar eigi að vera búnar. Það er kominn tími til að það sé skoðað. Þær eru leigðar í dag. Árið 2017 vorum við komin mjög langt með að kaupa þyrlur og setja fjármagn í það, en þá var önnur leið farin, það var talið hagstæðara á þeim tímapunkti. Ef við Íslendingar förum að taka meiri þátt í þessu með bandalagsþjóðunum verður svo sannarlega gerð krafa um að þær þyrlur séu sambærilegar þyrlum sem eru notaðar af nágrannalöndunum í leit og björgun, sem eru að mörgu leyti kannski betur búnar en við höfum hér á landi til að sinna því.

Og bara rétt til að ljúka þessu: Björgunarþyrlur eru öflug björgunartæki og geta flýtt fyrir björgun úr erfiðum aðstæðum og í mörgum tilfellum geta þær verið eini kosturinn til bjargar. Í slíkum tilfellum getur stuttur viðbragðstími skipt sköpum og því er mikilvægt að staðsetja þyrlur á fleiri en einum stað á landinu, m.a. í þeim tilgangi að stytta tímann til björgunar. Sama gildir um sjúkraflutninga á einstaklingum með lífshótandi veikindi eða áverka oft á vettvangi alvarlegra slysa. Þar er mikilvægt að geta brugðist skjótt við, koma með sérhæfða aðstoð á staðinn og geta flutt veika eða slasaða á viðeigandi sjúkrastofnun innan þeirra tímamarka sem nauðsynlegt er.

Ég vona að það verði góður framgangur í málinu. Væntanlega verður því vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar. En ég vona svo sannarlega að þingheimur styðji vel við málið og að við klárum það fyrir sumarið.