föst starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.
Virðulegi forseti. Mig langar að byrja á því að þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir framsöguna og frumkvæðið að þessu máli því að sá er hér stendur hefur nú ekki komið að þingsályktunartillögu áður en unnið að þessu máli í sínu fyrra starfi sem bæjarstjóri á Akureyri. Það er jafn mikilvægt núna eins og það var þá því að það hefur lítið gerst frá þeim tíma, nema hér eru nokkur atriði sem hv. þingmaður kom inn á í framsögu sinni sem mig langar aðeins að fá betri skýringar á. Það er talað um að þyrlan verði staðsett á Akureyri allt árið, sem var að sjálfsögðu baráttumál á sínum tíma líka. En þegar undirritaður átti samtöl við forstjóra Landhelgisgæslunnar á sínum tíma stóð alltaf í Landhelgisgæslunni að það þyrftu að vera tvær áhafnir staðsettar á Akureyri og þær þyrfti að manna báðar, ef ég man rétt með tveimur sex manna áhöfnum; það eru þá 12 menn sem þyrftu að vera staðsettir á Akureyri og með búsetu á Akureyri. Ég spyr hvort þingmaður geti upplýst mig um það hvort búið sé að tryggja að slíkt geti orðið og hvort það sé þá hluti af þeim kostnaði sem nefndur er í greinargerðinni, að hann fylgi því eða hvort hann dugi. Í öðru lagi langar mig að nefna aðeins varðandi það að komið var inn á að þyrlan hefði fyrir tveimur árum síðan verið staðsett á Akureyri um verslunarmannahelgina. Ég spyr hvort hv. þingmaður þekki til þess að þetta hafi verið gert reglulega eða hvort þetta hafi bara verið einstakt tilvik og þá af hverju.