156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

föst starfstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.

41. mál
[18:31]
Horfa

Flm. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka andsvarið. Formlega hef ég ekki tekið þátt í slíku en ég hef alveg átt samtöl við þá sem koma að þessum málum. Það fer ekki fram hjá neinum hvað er að gerast og hver þróunin hefur verið á síðustu árum. Ég hef oft talað í þessu samhengi um 2018 þegar allt fór á fleygiferð hér á okkar slóðum, á Grænlandi og á hafsvæðunum í kring, og það fer væntanlega ekki fram hjá nokkrum manni í dag með Grænland og Danina og allt þetta sem ég minntist á áðan varðandi fjárfestingar í nýjum skipum og allt það. Bara um helgina var herskip í höfn á Akureyri. Flotadeild frá NATO var í Eyjafirði með sex eða átta skip fyrir tæpum tveimur árum. Kjarnorkukafbáturinn, þjónustustoppið núna fyrir nokkrum vikum í Hrísey. Það er gríðarleg mikið að gerast. Við þekkjum þetta með fágæta eða sjaldgæfa málma sem forseti Bandaríkjanna talar mikið um í dag varðandi Grænland. Í dag eru birgðirnar í heiminum raunverulega í Kína og framleiðslan tengd Kína, annaðhvort í Kína, innan landamæra Kína eða í Afríku á vegum Kínverja. Þannig að það er meira að segja verið að líta á Grænland varðandi þau mál.

Það sem gerðist þessar tvær helgar sumarið 2023 á Akureyri, þetta var verslunarmannahelgin og að mig minnir helgin á eftir líka, Fiskidagshelgin, var að það var brjálað að gera. Það voru stöðug útköll báðar þessar helgar hjá Landhelgisgæslunni þannig að það sýndi sig bara í þeirri tilraun hversu gríðarlega mikilvægt er að þessi geta sé til staðar. Það vita allir, Gæslan veit það og ég held að stjórnvöld viti það, að það er ekki verið að þjónusta fólk á norður- og austurlandi, (Forseti hringir.) þann hluta landsins, með sama hætti og er gert hér á suðvesturhorninu og í nærsveitum (Forseti hringir.) höfuðborgarinnar í dag.

(Forseti (EÁs): Ég bið hv. þingmenn að virða ræðutíma.)