156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

föst starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.

41. mál
[18:38]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir góð svör þótt hann hafi skilið smávegis eftir þangað til í seinna andsvari. Liggi það fyrir að hér er ekki um að ræða neinar flokkspólitískar línur — það eru þá væntanlega, miðað við fyrra svar hv. þingmanns, þingmenn úr öllum flokkum sem eiga sæti á Alþingi í dag búnir að vera á einhverjum tímapunkti á málinu — þá hef ég svo sem lítið fram að færa í seinni spurningunni annað en bara tilhlökkun eftir að heyra svarið við seinni yfirferð hv. þingmanns því það var það sem ég var búinn að punkta sem ítrekun hjá mér. Þetta hlýtur þá fyrst og fremst að snúast um fjármagnið. Hv. þingmaður var búinn að fara yfir að innviðirnir á Akureyri væru til staðar, þannig að það er ekki það heldur. Þá hermir þetta væntanlega fyrst og fremst upp á það að tryggja þessu verkefni fjármagn ef aðrir þættir málsins liggja þverpólitískt fyrir.