156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

föst starfstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.

41. mál
[18:51]
Horfa

Flm. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er auðvitað hugmyndin með þessari þingsályktunartillögu að þetta sé bara mannað. Það sem kannski kom fram í greinargerð og í ræðu minni áðan er að það eru einmitt svo góðar forsendur fyrir því að fullmanna áhafnirnar og alla þjónustuna í kringum þetta vegna þeirrar þekkingar sem er á svæðinu. Þyrluflugmenn, þyrluflugstjórar Gæslunnar, eru meira að segja tveir á svæðinu. Það er mikil þyrlustarfsemi, viðhald á þyrlum, og flugvirkjar eru á flugvellinum sem gætu komið inn í þetta og stutt við. Síðan er sjúkramiðstöðin í fluginu staðsett á Akureyri. Það er meira að segja mannskapur sem hefur verið að sinna því sem hefur starfað á þyrlunum. Þetta er því fljótandi fram og til baka. Atriðið er nákvæmlega að það eru svo góðar forsendur fyrir því að geta gert þetta með öflugum hætti, vel mannað, miðað við þann mannskap sem er á svæðinu nú þegar og þá þekkingu sem þar er til staðar.

Síðan er áhugaverð, sem ég hef kannski ekki komið inn á, þessi tenging frá Akureyri til Grænlands, austurhluta Grænlands. með Twin Otter-vélunum og öllu því. Ef við hugsum þetta í stóru myndinni er auðveldara að skipuleggja leit og björgun frá norðurhluta Íslands en frá vesturströnd Grænlands yfir á norðausturhluta Grænlands. Eins og við heyrðum hv. þingmann fara yfir í ræðu sinni þá er einmitt oft verið að fljúga henni á skíðum vítt og breitt um Grænlandsjökul og út um allt Grænland, með sérsveitinni dönsku. Það eru bara svo ótrúlega góðar forsendur fyrir því að geta framkvæmt þetta.