föst starfstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir innlegg sitt í andsvari, þó svo að ekki hafi komið beinar spurningar, og eðlilegt að það komi úr þessari átt. Hv. þingmaður kemur inn á þetta samstarf á milli Íslands og Grænlands sem er mjög áhugavert hvað varðar þá þjónustu sem við höfum byggt upp í samstarfi við Grænlendinga. Við þekkjum það fyrir norðan í gegnum Norlandair og sjáum sömuleiðis, jafnvel með breytingum á flugleiðum innan lands, að hægt er að tengja þetta allt saman, hvort sem er með þyrluflugi á Ísafjörð, austur á Vopnafjörð eða hvert sem er. Af því að ég nefndi Grænland í minni ræðu áðan þá er hv. þingmaður nú í leyfi frá störfum, við getum orðað það þannig, sem flugumferðarstjóri. Það væri fróðlegt að fá innlegg í tengslum við þekkingu hans á flugumferð fyrir norðan land og þeirri flugumferð sem er á milli Íslands og Grænlands og á allri þeirri tengingu sem þar er á milli. Við komum aðeins inn á umræðu sem snýr að flugflota Air Greenland þar sem eru bæði þyrlur og flugvélar. Ef við eigum að samþætta þjónustu og annað, hvort sem er við Landhelgisgæsluna, þ.e. þyrlur Gæslunnar, eða flugvélar og þyrlur sem aðrir eiga, þá eru örugglega samlegðaráhrif þarna hvað það varðar.