föst starfstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.
Frú forseti. Ég ætla svo sem ekki að hafa þetta langt en mig langaði að koma hérna upp og lýsa stuðningi við þetta að því leyti að ég held að það sé nauðsynlegt að skoða þetta vel. Ef þyrla verður staðsett á Akureyri og tvær áhafnir þá gef ég mér að þær muni vinna saman, áhafnirnar í Reykjavík og á Akureyri. Tvær áhafnir duga því ekki til þess að ná yfir allan sólarhringinn allan ársins hring, ekki bara á Akureyri. Það segir sig kannski sjálft. Auðvitað er hér verið að leggja til töluverða útgjaldaaukningu og ég held að við þurfum, eins og með alla útgjaldaaukningu, að fara varlega og skoða hana vel. Ég styð þessa hugmynd. Þetta er góð hugmynd og við þurfum bara að skoða vel hvernig við viljum nota peninga. Við notum ekki hverja krónu oftar en einu sinni en hugmyndin er góð og ég vildi koma hingað upp og lýsa stuðningi við hana.