156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

föst starfstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.

41. mál
[19:03]
Horfa

Flm. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Þegar við víkkum umræðuna um þessi mál og þessa tillögu þá er hún hluti af stærra máli. Það hefur verið boðað að hér eigi að fara að ræða stefnu sem snýr að því að móta varnarmálastefnu fyrir landið. Það málefni sem við ræðum hér er raunverulega stór hluti af því. Á að leigja þyrlur? Á Gæslan að leigja þyrlur, á hún að kaupa, hvaða kröfur á að gera til þeirra? Síðan, eins og ég kom inn á áðan, er þetta atriði með hvernig þær eigi að vera búnar; búnaðurinn um borð og getan varðandi varnarviðbrögð og annað. Þá erum við komin út í NATO, Atlantshafsbandalagið og þá hluti. Þetta tengist allt í stórri mynd. Ég hef líka sagt í ræðu hér: Ef við værum að huga að vörnum landsins í dag, hvar yrði varnarstöð sett? Hún yrði ekki á sama stað og síðast ef hugsa ætti geópólitískt um þau málefni. Við Íslendingar verðum að fara að huga að því hér á norðurslóðum hvernig við ætlum að koma inn í þessi mál. Þarna held ég að við getum haft hlutverk sem er kannski einfaldara fyrir okkur að fara inn í heldur en margt annað varðandi varnar- og öryggismálin og fjárveitingar, fjármagn til þeirra hluta. Þarna erum við á heimavelli. Þess vegna ætti leit og björgun, sem sá sem hér stendur hefur rætt um í mörg ár, að vera það sem við sérhæfum okkur í, ásamt sprengjuleitinni og því. Þetta er kannski okkar auðveldasti kostur að velja og hann myndi líka styrkja starfsemina innan lands.