föst starfstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir seinna andsvar. Ég held að við séum í stórum dráttum sammála og það hefur komið fram í umræðunni hér að þingmenn úr öllum flokkum hafi verið á þessari tillögu í þau tvö skipti sem hún hefur verið lögð fram áður. Ef það er þannig að öryggis- og varnarmálastefnan, sem vonandi lítur dagsins ljós innan ekki svo langs tíma, gerir ráð fyrir því að við munum eyða meiri peningum í öryggis- og varnarmál þá er þeim peningum auðvitað vel varið í þennan málaflokk, í það að styrkja Landhelgisgæsluna og að styrkja það hlutverk lögreglu sem snýr að vörnum landsins. Ég held að við getum bara verið ásátt um og sammála um það að þetta er gott mál. Við þurfum að huga vel að því hvernig það er fjármagnað eins og allt annað sem lýtur að fjármálum ríkisins. Við komumst þá bara að sameiginlegri niðurstöðu. Ég ætla að taka undir það að ég held að þetta sé ekki flokkspólitískt mál þannig lagað. Þetta er auðvitað pólitík en ekki þannig að það muni skiptast eftir flokkum hvaða afstöðu fólk hefur til þessarar tillögu.