netlög sjávarjarða.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um netlög sjávarjarða. Meðflutningsmenn með mér á þessari tillögu eru hv. þingmenn Ágústa Ágústsdóttir, Bergþór Ólason, Ingibjörg Davíðsdóttir, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Þorgrímur Sigmundsson. Tillagan hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela atvinnuvegaráðherra að móta tillögur til úrbóta í ljósi þess að margt bendi til þess að réttaróvissa sé fyrir hendi um skilgreiningu netlaga. Ráðherra kanni hvort færa eigi ákvæði 2. kapítula rekabálks Jónsbókar um afmörkun netlaga aftur inn í lagasafnið. Ráðherra geri Alþingi grein fyrir athugun samkvæmt þessari ályktun á haustþingi 2025.“
Frú forseti. Jónsbók er lögbók sem tók við sem meginundirstaða íslensks réttar af Járnsíðu 1281 í kjölfar þeirra breytinga sem urðu við að Íslendingar gengu á hönd Noregskonungi með Gamla sáttmála 1262. Járnsíða mætti mikilli andstöðu en í stað þess að endurskoða hana var samin ný lögbók 1280 og send til Íslands. Hún var kennd við lögmanninn Jón Einarsson gelgju sem talinn er hafa verið aðalhöfundur hennar og hafði kynnt hana fyrir Íslendingum veturinn 1281. Jónsbók var einnig gagnrýnd í ýmsu, ekki síður en Járnsíða. Nokkur ákvæði Jónsbókar gilda enn þann dag í dag, frú forseti, og eru það elstu lög sem í gildi eru á Íslandi að undanskildum kristnirétti Árna biskups Þorlákssonar frá 1275. Þau ákvæði sem enn gilda eru jafn víðtæk og þau eru mörg en þau fjalla um allt frá dýravernd til viðurlaga við líkamsárásum. Helstu bálkar Jónsbókar sem enn eru í gildi eru kaupabálkur, landsleigubálkur, rekabálkur en einnig er að finna gildandi kafla úr mannhelgisbálki, kvennagiftingum, farmannalögum og þjófabálki. Þar er víða að finna athyglisverð ákvæði um mannlegt samfélag fyrr og nú. Sem dæmi er í Jónsbók fyrrnefndur kafli, þjófabálkur, og fjallar um auðgunarbrot og refsingar sem liggja við þeim. Talað er um þjófabálk enn þann dag í dag þegar menn segja að eitthvað taki út yfir allan þjófabálk. Það merkir að eitthvað er óheyrilegt eða hefur keyrt um þverbak. Við lögfestingu bókarinnar varð talsverð breyting á réttarskipan þjóðarinnar. Var hún undirstaða íslensks réttar næstu fjórar aldir eða allt þar til einveldi komst á á árið 1662. Talið hefur verið að engin bók hafi átt jafn ríkan þátt í að móta réttarvitund þjóðarinnar og varðveita íslenska tungu eins og Jónsbók. Þannig má segja að hún hafi verið orðið áhrifamesta bókin í réttar- og menningarsögu Íslendinga.
En aftur að tillögunni, frú forseti. Tillaga þessi var áður lögð fram á 151. löggjafarþingi en ekki náðist að mæla fyrir henni á því þingi. Markmiðið með tillögunni er að kanna hvort réttaróvissa sé fyrir hendi við afmörkun netlaga og að athuga hvort skilgreining á netlögum samkvæmt 2. kapítula rekabálks Jónsbókar skuli tekin aftur upp í lagasafnið. Með netlögum er átt við þann hluta jarðar sem fylgir henni og er í sjó eða vatni.
Í 2. kapítula rekabálks Jónsbókar er að finna afmörkun á netlögum í sjó en þar segir:
„Allir menn eigu at veiða fyrir utan netlög at ósekju […]“
Þetta ákvæði er að finna í lagasafninu í dag. En í rekabálki er einnig að finna svohljóðandi ákvæði sem ekki hefur verið í lagasafni, a.m.k. ekki frá árinu 1919:
„En þat eru netlög utast er selnet stendr grunn .XX. möskva djúpt at fjöru ok koma þá upp ór sjá.“
Frú forseti. Ég geri mér alveg grein fyrir að þetta er flókið mál og erfitt að skilja en ég ætla að leitast við að skýra þetta samt sem áður hér fyrir þingheimi. Í fornyrðaskýringum Páls Vídalíns frá 18. öld kemur fram hversu djúpt 20 möskva selnet er. Páll nefnir að í Jónsbókarhandriti standi eftirfarandi:
„En þat eru netlög utaz er selnót stendur grunn 20 möskva djúp ath fjöru oc komi þá flár uppúr sjó, þat er fjögra faðma djúp.“
Í öðru handriti stendur:
„Það eru netlög utarst, er selnet stendur grunn 20 möskva djúp að fjöru sjóar, og koma þá flár uppúr sjó, en það er 12 álna djúp að fjöru.“
Samkvæmt skýringum Páls Vídalíns lögmanns gefa tólf álnir og fjórir faðmar sömu niðurstöðu eða 6,88 m. Ystu mörk netlaga samkvæmt Jónsbók eru því við tæplega 7 m dýpi á stórstraumsfjöru.
Í 3. gr. tilskipunar um veiði á Íslandi frá árinu 1849 er skilgreining á netlögum. Þar segir að netlög séu 60 faðmar frá stórstraumsfjörumáli, en það nemur 112,98 m. Samkvæmt þessu miðar veiðitilskipunin við lengd en ekki dýpi eins og ákvæðið í rekabálki Jónsbókar. Í þessu sambandi má benda á 21. gr. veiðitilskipunarinnar sem felld var brott með lögum nr. 116/1990 en þar kom eftirfarandi fram:
„Með þessari tilskipun er allt það aftekið, sem lög hafa verið hingað til um fuglveiði og dýraveiði og selveiði, en allar greinar laganna um fiskveiði og hvalveiði skulu standa óraskaðar.“
Segir í skýringum með þessari 21. gr. frá 1849, frú forseti:
„Þareð ekkert orð í íslenzku svarar til hins danska orðs: „Jagt“, en orð þetta innibindur ekki, einsog íslenzka orðið „veiði“, í sér fiskiveiði og hvalveiði, þótti nauðsyn að greina til, að öll lagaboð um fiskveiði og hvalveiði skuli standa óröskuð.“
Því má ætla að afmörkun netlaga í Jónsbók, sem finna mátti á þeim tíma í lagasafninu, hafi ekki fallið brott með lögfestingu tilskipunar um veiði á Íslandi frá 1849. Virðist sem svo að þessi skilgreining netlaga, sem ég hef hér farið yfir, hafi því verið felld á brott úr lagasafninu fyrir mistök, frú forseti, ef ég má komast svo að orði.
Í stuttu máli er ég að segja að það er eitthvert lagaákvæði frá 1281 sem telja má að eigi að vera í lagasafninu en er það ekki, það hafi fallið út og verið tekið út fyrir einhvers konar mistök eða vangá sem megi rekja alveg til 1849 þegar þessi tilskipun er lögfest.
Í 1. mgr. 4. gr. vatnalaga, nr. 15/1923, eru netlög jarða skilgreind sem 115 m frá bakka í stöðuvatni. Það viðmið er einnig notað í öðrum lögum og má í þeim efnum nefna lög um beitutekjur, lög um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins, lög um varnir gegn mengun hafs og stranda, jarðalög, lög um fiskrækt, lög um lax- og silungsveiði, lög um fiskeldi og lög um skeldýrarækt. Í öllum þessum lögum er miðað við 115 m, þ.e. þau netlög sem miðað er við í þeim lögum. Í þessu sambandi sem ég er að tala er í fyrsta lagi lengd netlaga í metrum talið frá stórstraumsfjöruborði og ég er einnig að tala um miðað við dýpt eins og ég tel vera lög á Íslandi.
Vert er að nefna að eignarrétturinn er friðhelgur og varinn í 72. gr. stjórnarskrárinnar og í 1. gr. 1. samningsviðauka mannréttindasáttmála Evrópu sem lögfestur var með lögum nr. 62/1994. Þannig er eðli þessara réttinda slíkt að það skiptir sköpum að miðað sé við rétta skilgreiningu á netlögum þegar þau eru mæld.
Fræðimenn hafa einnig fjallað um þessa tvenns konar afmörkun á netlögum og ekki verið á einu máli um hvort miða eigi við lengd eða dýpt. Álit þeirra kemur ekki að öllu leyti heim og saman við nokkra dóma sem gengið hafa í Hæstarétti og ég mun nefna hér síðar. Í grein sinni „Landamerki fasteigna“ frá árinu 1994 kemst Tryggvi Gunnarsson svo að orði, með leyfi forseta:
„Ég hef ekki trú á því að dómstólar færu þá leið að nota regluna um 20 möskva djúpt selnet, m.a. með tilliti til þess hversu óörugg slík mörk eru, auk þeirrar þróunar sem orðið hefur á síðari tímum í reglum um afmörkun á netlögum.“
Þá kemst Sigurður Líndal að þeirri niðurstöðu í grein sinni „Fiskveiðilandhelgi Íslands og netlög sjávarjarða“ frá árinu 2004 að óvíst sé hvort Jónsbókarviðmiðun um dýptarmörk netlaga yrði lögð til grundvallar í eignarréttarmáli, m.a. vegna þess að hún væri erfið í framkvæmd. Hugsanlegt væri að dómstólar myndu fremur miða við 115 m fjarlægðarlínu með þeim rökum að dýptarlínan væri fallin úr gildi fyrir fyrnsku. Fjarlægðarlínan væri „í bestu samræmi við réttarþróun síðastliðin 150 ár og fylgdi meginreglu laga“. Í áliti frá Skúla Magnússyni frá árinu 2001, „Um stjórnskipulega vernd fiskveiðiréttar sjávarjarða“, segir í tengslum við Hæstaréttardóm frá árinu 1996 að ótvírætt sé að við ákvörðun netlaga með hliðsjón af fiskveiðirétti landeiganda beri að miða við dýptarreglu Jónsbókar en ekki fjarlægðarreglu veiðitilskipunarinnar og síðari laga. Hvað varðar ýmis önnur mikilvæg réttindi landeiganda innan netlaga gildi hins vegar almennt reglan um 115 m fjarlægð frá stórstraumsfjörumáli.
Eins og hefur verið rakið hefur í dómum Hæstaréttar verið fjallað um netlög. Hér má nefna dóm réttarins frá 1996, á bls. 2532 í dómasafni þess árs. Í því máli var maður ákærður fyrir að hafa lagt grásleppunet sín innan 60 faðma frá stórstraumsfjörumáli og þar með innan netlaga, sbr. 3. gr. fyrrgreindrar tilskipunar frá árinu 1849. Í dóminum segir, með leyfi forseta:
„Ákvæði 2. kapítula rekabálks Jónsbókar um afmörkun netlaga, sem miðast við sjávardýpi, hafa heldur ekki verið felld úr gildi með ákvörðun löggjafans, þótt þau hafi hins vegar ekki verið tekin upp í útgáfu lagasafns 1919 og eftir það. Alls er óvíst um, hvert sjávardýpi er á þeim stað, er ákærði lagði net sín.“
Þarna er Hæstiréttur í raun að segja, frú forseti, að þessi ákvæði rekabálks séu enn í gildi, að þau hafi verið felld úr lagasafninu án þess að Alþingi hafi þar komið að.
Jafnframt reyndi á umrætt ákvæði rekabálks Jónsbókar í dómi Hæstaréttar frá 28. apríl 2005 í máli nr. 455/2004. Þar var maður sakfelldur fyrir fiskveiðibrot með því að hafa veitt grásleppu á óskráðum báti sínum í fiskveiðilandhelgi Íslands, án almenns leyfis til að veiða í atvinnuskyni eða leyfis til grásleppuveiða. Bar ákærði fyrir sig að hann hefði róið í netlögum jarðar með leyfi landeiganda. Í héraðsdómi, sem staðfestur var af Hæstarétti, kom fram að frá fornu fari hefði verið kveðið á um rétt landeiganda til veiða í netlögum hér á landi. Þá sagði í dóminum, með leyfi forseta:
„Í 2. kapítula rekabálks Jónsbókar var tekið fram að allir menn ættu að veiða fyrir utan netlög að ósekju, en það væri netlög yst, er selnót stæði grunn 20 möskva djúp að fjöru og kæmu þá flár upp úr sjó. Nýjustu ákvæði í íslenskum lögum um netlög er að finna í lögum nr. 81/2004 en samkvæmt 2. gr. þeirra merkja netlög í þeim vatnsbotn 115 m út frá bakka stöðuvatns sem landareign liggur að, svo og sjávarbotn 115 m út frá stórstraumsfjöruborði landareignarinnar.“
Í dóminum sagði einnig:
„Þótt þannig sé ekki skýrt í lögum hvort fasteignareigendur eigi allar sömu heimildir í netlögum og á landinu fyrir ofan og hvort réttur þeirra til veiði sjávarfiska skuli miðast við fjarlægð frá landi eða sjávardýpi, verði að líta til þess að ekki liggi fyrir að ákærði hafi veitt grásleppuna á meira dýpi en tekið er fram í 2. kapítula rekabálks Jónsbókar. Verður hér miðað við ákvæði kapítulans um að landeigandi eigi veiðir allar í netlögum og í fjörunni.“
Þrátt fyrir réttindi landeiganda í netlögum samkvæmt þessu komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að löggjafanum væri heimilt að vernda nytjastofna í fiskveiðilandhelginni og stuðla að hagkvæmri nýtingu þeirra með því að banna landeigendum veiðar úr þeim innan netlaga sem utan nema með sérstöku leyfi.
Frú forseti. Þannig hefur Hæstiréttur a.m.k. tvívegis stuðst við skilgreininguna sem fram kemur í 2. kapítula rekabálks Jónsbókar en ákvæði hans hafa af einhverjum orsökum ekki verið tekin upp í lagasafnið síðan árið 1919. Og hvað þýðir þetta, frú forseti? Þetta þýðir að eignarréttur er að færast frá landeigendum til almannavaldsins, þ.e. ríkisins. Þetta þarf að leiðrétta, frú forseti. Það er orsökin fyrir því að ég er að flytja þetta mál. Þetta þarf að leiðrétta. (Forseti hringir.) Þessi lög hafa ekki verið numin úr gildi og þau þurfa að fara aftur í samt lag.