156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

þjóðarátak í landgræðslu og skógrækt.

61. mál
[19:23]
Horfa

Flm. (Þórarinn Ingi Pétursson) (F):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu um þjóðarátak í landgræðslu og skógrækt. Flutningsmenn á þessari tillögu eru sá sem hér stendur og hv. þingmenn Halla Hrund Logadóttir, Ingibjörg Isaksen, Sigurður Ingi Jóhannsson og Stefán Vagn Stefánsson.

Þessi þingsályktunartillaga hefur komið hér fyrir áður í þrígang alla vega á undangengnum þingum. Ég held að það sé óhætt að segja að það eru gríðarleg tækifæri fyrir okkur Íslendinga að taka saman höndum og fara af fullum krafti í bæði skógrækt og landgræðslu. Vissulega höfum við gert gríðarmikið á undanförnum áratugum, allt frá því að Sandgræðsla Íslands var stofnuð á sínum tíma og Skógrækt ríkisins sömuleiðis. En betur má ef duga skal og í ljósi aukinna loftslagsbreytinga og brýnna alþjóðlegra áskorana er þessi tillaga lögð fram aftur.

Þingsályktunartillagan felur það í sér að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra komi á samstarfsvettvangi, í samráði við atvinnuvegaráðherra, fyrir lok árs 2026 þar sem stofnunin Land og skógur, bændur, atvinnulífið og almenningur taki saman höndum um að taka þátt í að vinna hér að kolefnisbindingu.

Ég held að það sé óhætt að segja að það er mjög mikið hægt að gera þegar kemur að þessu. Við þekkjum öll umræðuna sem hefur verið um losun frá landi og hversu mikið þjóðin er að losa og má losa af koltvísýringi út í andrúmsloftið og ég held að samhliða þessu væri nú ágætt að fara í að mæla það almennilega hversu mikið við erum að binda og hversu mikið við erum að losa. Það er nú einu sinni þannig að það eru verulega skiptar skoðanir þegar að því kemur.

Samkvæmt þessar tillögu yrði þátttaka almennings tvíþætt, annars vegar með beinni þátttöku í landgræðslu og skógrækt undir handleiðslu sérfræðinga stofnunarinnar Lands og skógar og hins vegar með kolefnisjöfnun viðskipta í samstarfi við fyrirtæki. Við vitum að það er mikil ásókn fyrirtækja í dag að kaupa land og/eða komast að landnæði til að planta skógi og binda kolefni. Með aukinni umhverfisvitund almennings sem hefur vaxið ár frá ári undanfarið og í ljósi hins mikla áhuga fyrirtækja á því að fara í þessa vinnu sem leiðir til kolefnisjöfnunar þá er alveg tilvalið að við kæmum hér saman og það væri bara gert þjóðarátak til að efla slíkt samstarf.

Árið 2022 gaf íslenska ríkið út sína fyrstu sameiginlegu stefnu í landgræðslu og skógrækt undir heitinu Land og líf. Þar er sett fram skýr framtíðarsýn um nauðsyn stefnu og aðgerða til ársins 2026. Samhliða þessu hefur sameining Landgræðslunnar og Skógræktarinnar í nýju stofnunina Land og skóg styrkt innviði umhverfisverndar og þjónustu við bændur og almenning. Vel þekktur er sá samstarfsvettvangur sem hefur verið við lýði til áratuga, þ.e. Bændur græða landið. Það er samstarfsverkefni bænda og Landgræðslunnar um uppgræðslu heimalanda bænda vítt og breitt um landið og það hefur skilað feikigóðum og miklum árangri. Og það sama á við um þau verkefni sem þessi bændaskógrækt hefur komið að.

Það kunna margir að velta því fyrir sér hvort með þessu, að við ætlum að fara í stórátak í landgræðslu og skógrækt, þurfi þá að fara að afmarka ákveðin svæði með girðingum og þess háttar. Flutningsmenn þessarar tillögu telja að svo þurfi ekki að vera því að landnýting hefur heldur betur breyst hin síðustu ár. Margir hafa nú fengið rautt í augun þegar þeir sjá blessaða sauðkindina vappa um holt og hæðir og mela og móa og jafnvel innan skógræktarsvæða. Reynslan sýnir okkur að þetta á bara vel saman og hægt að benda á það hæglega vítt og breitt um landið að uppgræðsla á landi og beit sauðfjár fer bara ágætlega saman og það eru ótal dæmi sem sanna það.

Með því að fara í þetta þjóðarátak með almenningi, bændum og fyrirtækjum og þeim stofnunum sem um ræðir hér þá gætum við náð feikimiklum og góðum árangri við að binda kolefni. Með þjóðarátaki í landgræðslu og skógrækt mun Ísland geta sýnt mikilvægt frumkvæði í alþjóðlegri baráttu gegn loftslagsbreytingum en um leið aukið gæði og sjálfbærni íslenskrar náttúru. Þetta verkefni mun þannig ekki aðeins hjálpa okkur í að mæta þeim skuldbindingum Íslands gagnvart umheiminum heldur einnig efla umhverfisvitund þjóðarinnar og tryggja betri framtíð fyrir komandi kynslóðir.

Frú forseti. Svona að lokum vil ég segja að jarðvegur er sennilega ein sú mikilvægasta auðlind sem hver þjóð getur státað sig af eða átt. Jarðvegur er undirstaða nær allrar matvælaframleiðslu heimsins en jarðvegseyðing er sömuleiðis ein mesta ógn við fæðuöryggi mannkynsins. Eyðing gróðurs og jarðvegs hefur um langa hríð verið ein helsta áskorun í umhverfismálum á Íslandi en við flutningsmenn teljum að við séum sem betur fer farin að horfa í aðra átt hvað það varðar. Þjóðarátak í landgræðslu og skógrækt kemur til með að gera enn betur til að draga úr losun vegna landnotkunar og efla kolefnisbindingu í gróðri og jarðvegi.

Við vonum nú, frú forseti, að við sameinumst um þetta hér á þinginu, þó svo að það séu einungis þingmenn Framsóknarflokksins sem eru flutningsmenn að þessari tillögu, því að ég held að allir sem hér sitja á hinu háa Alþingi geti nú sameinast um að stunda landgræðslu og skógrækt þjóðinni til heilla.