156. löggjafarþing — 20. fundur,  25. mars 2025.

skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

212. mál
[19:33]
Horfa

Flm. (Sigmar Guðmundsson) (V):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Hér er um að ræða ákvæði í lögunum sem stundum er nefnt sjálfskaparvíti. Þeir sem flytja þetta mál með mér eru þingmenn Viðreisnar, hv. þingmenn Eiríkur Björn Björgvinsson, Grímur Grímsson, Guðbrandur Einarsson, Ingvar Þóroddsson, Jón Gnarr, María Rut Kristinsdóttir og Pawel Bartoszek. Kann ég þeim að sjálfsögðu góðar þakkir fyrir að hafa lagst á árarnar með mér í þessu máli.

Í mjög stuttu máli má segja að þetta sé í raun ákveðið réttlætismál. Þetta er réttlætismál að því leytinu til að með því að gera þá breytingu sem hér er verið að leggja til er komið í veg fyrir að hægt sé að mismuna fólki á einu tilteknu sviði fyrir að vera með fíknisjúkdóm. Svoleiðis er nú bara staðan. Svo ég vísi bara í greinargerðina um meginefni frumvarpsins þá er markmið frumvarps þessa að fella úr lögum skilyrði framreiknings lífeyrisgreiðslna þess efnis að ekki megi rekja orkutap til ofnotkunar áfengis, lyfja og vímuefna. Þetta ákvæði, sem ég talaði um sem sjálfskaparvíti, á sér langa sögu í íslenskum lögum og vitna ég nú í greinargerðina en þar segir að slíkt ákvæði hafi verið í lögum um alþýðutryggingar:

„Þar sagði að Atvinnuleysissjóður mætti ekki veita atvinnuleysisstyrki til þeirra sem hefðu misst atvinnu af ástæðum sem þeir sjálfir ættu sök á, svo sem vegna drykkjuskaparóreglu.“ — Svona orðuðu menn hlutina þá. — „Slíkt ákvæði var sömuleiðis að finna meðal skilyrða um greiðslu sjúkrabóta í lögum um almannatryggingar, nr. 50/1946. Ákvæði um sjálfskaparvíti hvarf úr lögum þegar lög um almannatryggingar, nr. 67/1971, tóku gildi. Í engum þessara laga var gerð grein fyrir ástæðum ákvæðisins eða það rökstutt á nokkurn hátt.“

Svo er rakið hér í greinargerðinni að í reglugerðum og samþykktum ýmissa lífeyrissjóða var m.a. tekið mið af lögum um almannatryggingar og þaðan voru ættuð ákvæði um brottfall réttinda á grundvelli sjálfskaparvítis. Til þessara reglugerða var vísað í frumvarpi til laga um söfnunarsjóð lífeyrisréttinda þegar gerð var grein fyrir ákvæði sem varð að 2. mgr. 11. gr. laga nr. 95/1980. Inntak þess ákvæðis var að ekki skyldi reikna möguleg réttindi vegna ókomins tíma ef örorka væri rakin til ofneyslu áfengis, deyfilyfja eða fíknilyfja. Þótt það sé ekki sagt berum orðum í því frumvarpi sem varð að þeim lögum sem hér er verið að leggja til breytingu á, má ætla að fyrirmynd að ákvæði laganna um sjálfskaparvíti hafi verið sótt í þessi lög frá 1980. Það eru engar skýringar á ákvæðinu sem fylgja og enginn rökstuðningur.

Varðandi þetta vil ég segja að auðvitað er það þannig að í dag er allt önnur þekking á fíknisjúkdómum en var fyrir einhverjum áratugum síðan, það liggur alveg fyrir. Þetta ástand sem menn á sínum tíma kölluðu drykkjuskaparóreglu er í dag skilgreint sem sjúkdómur, það er meðhöndlað sem sjúkdómur og þeir sem þar falla undir eru auðvitað veikir einstaklingar og þeir eiga sömu mannréttindi skilið og aðrir. En það er þessi tímaskekkja í þessum tilteknu lögum og það er þetta ákvæði sem við erum að leggja til að falli á brott, þ.e. að orðin „og ekki orðið fyrir orkutapi sem rekja má til ofnotkunar áfengis, lyfja eða fíkniefna“ í 2. mgr. 15. gr. laganna falli brott.

Þetta er eins og ég segi bara ákveðið sanngirnissjónarmið. Lífeyrissjóðirnir hafa notað þetta ákvæði til að koma í veg fyrir að fólk með fíknisjúkdóma njóti sömu réttinda og aðrir. Það verður að teljast nokkuð gróf mismunun. Þegar menn tala um sjálfskaparvíti væri auðvitað líka hægt að tala um margt annað heldur en bara fíknisjúkdóma, eins og gefur að skilja. Þetta hefur t.d. verið í gegnum tíðina mikið baráttumál hjá Öryrkjabandalaginu og þar hafa menn haft horn í síðu þessa ákvæðis, sem við erum að leggja til að falli á brott, mjög lengi. Þar hefur t.d. á þeirra vettvangi verið vísað til dómsmáls sem höfðað var gegn Gildi lífeyrissjóði vegna þess að synjað var um þennan framreikning sem hér er undir og við erum að leggja til að ákvæðið falli á brott út af. Þar var afstaða lífeyrissjóðsins og synjun um framreikning m.a. byggð á fullyrðingum trúnaðarlæknis sem var að tilgreina orkutapið sem þarna var til umræðu. Í niðurstöðu trúnaðarlæknisins sagði að þarna væri um að ræða, með leyfi forseta, „blandaða vímuefnaneyslu, sem leitt hefur til ýmiss konar slysaáverka með þeim afleiðingum að maðurinn býr við langvarandi verki frá stoðkerfi og andlega vanlíðan. Þar er um að ræða sjálfskaparvíti í skilningi samþykktar sjóðsins og laga. Ekki þykir ástæða til að boða manninn í viðtal og skoðun þar sem harla ólíklegt má telja að slík athugun breyti niðurstöðu þessa mats og þar sem læknisfræðileg gögn málsins þykja fullnægjandi.“

Ég ætla bara að leyfa mér að viðhafa þau orð hér að þessi stutti texti, sem ég er að vísa hér til, er löðrandi af fordómum og á ekki að fyrirfinnast að mínu mati. En á þessu var engu að síður byggt af hálfu lífeyrissjóðsins. Það þurfti þá að höfða mál eftir að það var búið að reyna að leiðrétta þetta hjá sjóðnum sem hafnaði því ítrekað. Málinu lauk síðan með dómsátt og þar byggði á nýju mati hjá Gildi lífeyrissjóði. Var komist að þeirri niðurstöðu að við ákvörðun sjóðsins, með leyfi forseta, „um að synja stefnanda um rétt framreiknings örorkulífeyris hafi ekki legið fyrir fullnægjandi gögn því til sönnunar að áverkar stefnanda sem taldir eru meginorsök örorku hans hafi orsakast af ofneyslu áfengis eða fíkniefna eins og ákvörðun hans byggði þó á og því hafi ákvörðunina skort lögmæta stoð.“

Það sem er undir í þessu máli og er verið að benda á hér í greinargerð og hefur verið bent á af hálfu Öryrkjabandalagsins og reyndar fleirum, er að hér sé auðvitað um mannréttindabrot og brot á stjórnarskrá að ræða. Á þetta hefur þó aldrei reynt með fullnægjandi hætti fyrir dómstólum því að lífeyrissjóðir hafa gjarnan samið sig frá álitaefnum þessa máls með dómsátt. Við flutningsmenn teljum því að það sé brýnt að fella þetta ákvæði brott, það sé bara einfalt mannréttindamál. Það sé alger tímaskekkja að ákvæði um sjálfskaparvíti sé í íslenskum lögum, að fólk geti misst rétt vegna þess að það er með fíknisjúkdóm. En það er einmitt rökstuðningur sem menn nota og byggja á þessu tiltekna ákvæði.

Meðan þetta lagaákvæði er í gildi er ekki jafnræði meðal fólks, það er verið að undanskilja fólk sem á sögu um fíknivanda sem er auðvitað þvert á allar niðurstöður vísindanna í dag, þvert á alla hugsun í dag, til allrar hamingju því að mikið hefur nú breyst. Þetta er mismunun og það má líka færa rök fyrir því að meðalhófs hafi ekki verið gætt við lagasetninguna. Ákvæðið girðir fyrir að einstaklingum sé tryggður réttur til aðstoðar. Þetta er það sem við flutningsmenn myndum vilja hafa til hliðsjónar þegar við leggjum þetta mál fyrir þingið.

Svo vitna ég aftur í greinargerð málsins, með leyfi forseta:

„Heilbrigð skynsemi segir að mismunun sú sem birtist í ákvæðinu um sjálfskaparvíti telst vart vera mismunun á málefnalegum grunni.“

Hér er verið að vísa í hæstaréttardóm sem hefur fallið um það að þegar menn fara í svona mismunun þá verði hún að vera byggð á málefnalegum grunni og það á auðvitað ekki við í þessu tilfelli. Svo ég haldi áfram með tilvitnunina, með leyfi forseta:

„Fólk, sem hefur þurft að glíma við fíknisjúkdóma sökum fíknar í áfengi, lyf eða fíkniefni, stendur verr að vígi en aðrir í sambærilegri stöðu.“

Að endingu, frú forseti, verður að geta þess að ákvæði um sjálfskaparvíti getur leitt til þess að fólk veigri sér við að leita aðstoðar vegna mjög alvarlegs sjúkdómsástands af ótta við að þar með sé verið að skjalfesta vandann og þar með er mögulega komið skálkaskjól í ljósi þessa tiltekna ákvæðis fyrir sjóði að mismuna fólki á grundvelli ákvæðisins. Það varðar miklu fyrir samfélagið allt að lög og reglur greiði fyrir því að fólk leiti sér aðstoðar vegna sjúkdómsástands og að ekki séu einhver ákvæði í lögum eins og þetta sem hér er til umræðu sem aftri fólki frá því að leita sér aðstoðar. Þetta er mikið þjóðþrifamál og ég vona svo sannarlega að okkur auðnist að klára það hér á þessu þingi.