156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

Frestun á skriflegum svörum.

[10:31]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Borist hefur bréf frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 127, um styrki til fjölmiðla og tekjur Ríkisútvarpsins, frá Árna Helgasyni. Einnig hefur borist bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 141, um skatta og gjöld á farartæki, frá Jóni Gunnarssyni.