156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

hækkun veiðigjalda.

[10:31]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Virðulegur forseti. Fyrir þremur mánuðum fullyrti hæstv. formaður Viðreisnar með afgerandi hætti að ekki yrði ráðist í neinar skattahækkanir. Fullkominn viðsnúningur á þeim orðum var svo strax í fyrradag þegar fyrstu skrefin í átt að skattahækkunum voru kynnt með tvöföldun veiðigjalda þótt sumir stjórnarliðar hafi staðið í þeirri trú að ekki hafi verið um skattahækkun að ræða. Svo er reyndar, frú forseti. Líkt og segir berum orðum í frumvarpinu sjálfu, ef stjórnarliðar vilja glöggva sig á hvað þar stendur, þá er þetta vissulega skattahækkun, skattahækkun sem boðuð er undir yfirskini einhvers konar leiðréttingar og annars orðagjálfurs.

Á kynningu hæstv. atvinnuvegaráðherra og hæstv. fjármálaráðherra voru þau orð látin falla að ríkissjóður hefði orðið af tekjum á síðustu árum og það sé hér með leiðrétt. Orðið af tekjum, frú forseti, eins og svínað hafi verið á ríkissjóði með einhverjum hætti. Liggur beinast við að spyrja hæstv. ráðherra Viðreisnar hvort hann telji að ríkið hafi orðið af tekjum á öðrum sviðum vegna annarra meintra vanstilltra skatta og gjalda. Mega landsmenn vænta annarra meintra skattaleiðréttinga frá ríkisstjórninni sem í hugarheimi stjórnarliða eru óréttlátar í dag. Hver er mælikvarðinn á réttláta skattheimtu? Ætlar ríkisstjórnin að gefa leiðarvísi þar um, handbók jafnvel?

Frú forseti. Hæstv. fjármálaráðherra hyggst þess utan byggja skattheimtu á Íslandi á aðstæðum í öðru landi, aðstæðum sem eru með öllu ósambærilegar því sem gerist hér á landi. Ég spyr hæstv. ráðherra: Stenst það nánari skoðun? Er það sanngjarnt? Hvers vegna eru í tekjuöflunarskyni þá álagður fasteignaskattar á Íslandi ekki alveg eins ákvarðaðir út frá fasteignaverði í Ósló?