156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

hækkun veiðigjalda.

[10:34]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir hennar spurningu og bendi henni á að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kom fram að þessar breytingar ætti að gera og þær ættu því ekki að koma neinum á óvart. Nú er það svo að ég hef sjálfur stundað rannsóknir á verðmyndun á fiski um allnokkurt skeið og get upplýst þingheim um það að verðmunur á þeim fiski sem fer um fiskmarkaði bæði á Íslandi og í Noregi er lítill, þ.e. verðið er mjög svipað. Það ætti engum að koma á óvart vegna þess að bæði norskur og íslenskur fiskur fara til sömu kaupenda, eru í eðlinu mjög svipaðir og því er fullkomlega eðlilegt að verð á þessari hrávöru sé mjög svipað í löndunum tveimur. Einu frávikin sem hægt er að finna þar á eru á því sem við gætum kannski kallað meðaflategundir þar sem verðið er umtalsvert hærra á Íslandi heldur en í Noregi. Það hefur ekki alltaf verið þannig. Þetta er þróun sem hófst með því að útflutningseinkaleyfum var hrundið og fiskmörkuðum komið á árið 1987 og hefur smám saman verið að þróast í þá átt og ástæðan er sú að fyrirkomulag markaða í Noregi gerir lítið úr meðafla, gerir sérhæfingu erfiða. En á Íslandi er sú aðstaða öll miklu auðveldari. Þannig að öll þau gögn sem við eigum og raunar almennar rannsóknir á hrávörumörkuðum styðja það að þegar um sömu hrávöru er að ræða, sem fer síðan í afurðir sem fara inn á sömu markaði, er verðið hið sama.