156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

hækkun veiðigjalda.

[10:36]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og talandi um rannsóknir hæstv. ráðherra þá er skemmst að minnast ummæla hans sem voru látin falla fyrir nokkrum árum, með leyfi forseta:

„Mér finnast hugmyndir manna um umfang rentu í sjávarútvegi á Íslandi oft vera skringilega bjartsýnar. […] veiðigjöld verða aldrei neinn meiriháttar tekjustofn fyrir ríkið. Þau leysa aldrei af hólmi til dæmis tekjuskatta. […] menn hafa séð að einhverju leyti töluverðum ofsjónum yfir hagnaði í sjávarútvegi.“

Yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar er að stækka kökuna en þar liggur ekkert fyrir um að hér sé ekki verið að skjóta sig í fótinn og kakan einfaldlega minnki. Ég spyr því hæstv. ráðherra: Hafa möguleg neikvæð áhrif þessarar skattahækkunar, t.d. á störf á landsbyggðinni, afleidd áhrif og tilheyrandi kostnað fyrir ríkissjóð verið metin? Getur ráðherra fullyrt að ríkissjóður komi til með að enda í plús eftir þessar breytingar? (Forseti hringir.) Getur ráðherra fullyrt að í stóra samhenginu fyrir íslenskt samfélag sé hér ekki verið að kasta krónunni fyrir aurinn?