156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

skipan ráðherra í valnefndir vegna vals í stjórnir fyrirtækja.

[10:39]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil beina fyrirspurn til hæstv. fjármálaráðherra í tengslum við valnefndir fyrir stjórnir ríkisfyrirtækja og tvær nýskipaðar stjórnir sem voru skipaðar í gær. Það var 14. febrúar síðastliðinn sem nýtt verklag var kynnt hér hvað varðar stjórnir ríkisfyrirtækja á grundvelli laga sem samþykkt höfðu verið undir lok síðasta þings. Nokkrum dögum síðar fór hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, yfir þessi mál í ræðu og sagði að hluta til í léttum tón en samt með alvarlegum undirtóni: Verða þetta bara vinir Viðreisnar sem tilnefna aðra vini Viðreisnar?

Í gær voru tveir aðalfundir, annars vegar hjá Isavia og hins vegar hjá Íslandspósti. Og nú vill svo til að í þessum tveimur stjórnum var öllum stjórnarmönnum skipt út nema einum í stjórn Isavia og það hittir þannig á að sá stjórnarmaður sem heldur áfram er sá sem var tilnefndur af Viðreisn í fyrri stjórn. Hjá Íslandspósti komu allir nýir stjórnarmenn inn í aðalstjórn en það átti við um einn þeirra að sá hafði setið í varastjórn Íslandspósts árið á undan, og sá var tilnefndur af Viðreisn. Er þetta tilviljun, hæstv. ráðherra? Eða eru varnaðarorð hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur að raungerast; að á endanum virðast það hafa verið vinir Viðreisnar sem velja aðra vini Viðreisnar til stjórnarsetu í opinberum fyrirtækjum?