skipan ráðherra í valnefndir vegna vals í stjórnir fyrirtækja.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir spurninguna. Ég hef vikið að því áður að mér finnst ekki bragur á því þegar þingmenn gagnrýna þá sem ekki geta varið sig, í þessu tilfelli valnefndina. Hún er skipuð sömu einstaklingum og stýrt af sömu einstaklingum og síðasta ríkisstjórn notaði við skipun í stjórnir bankanna í eigu ríkisins þannig að þar hafa ekki verið gerðar neinar breytingar í neina þá átt sem hér er gefið í skyn. Fyrirkomulagið er með þessum hætti: Valnefndin skilar tíu nöfnum. Síðan er farið yfir þá niðurstöðu með tilliti til hæfis viðkomandi tíu aðila, til kyns þeirra og svo er skipað í stjórnina þannig að í henni sé fólk með hæfileika á öllum sviðum. Annað er ekki skoðað. Ég kann þessum aðdróttunum frekar illa.