skipan ráðherra í valnefndir vegna vals í stjórnir fyrirtækja.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið og gef nú svo sem lítið fyrir það að hæstv. ráðherra kunni einhverju heldur illa. Það hittist bara þannig á að hæstv. ráðherra fékk að velja úr tveimur fulltrúum í hvert stjórnarsæti. Fyrir þessi tvö fyrirtæki sem var skipað í stjórnir fyrir í gær komu 20 tilnefningar og það hittist bara þannig á að hæstv. ráðherra, sem á auðvitað endanlega valið, velur í báðar stjórnirnar fyrri fulltrúa Viðreisnar. Í báðum tilvikum er augljóst að hæstv. ráðherra átti úr fleiri kostum að velja. Þannig að þó að hæstv. ráðherra líði illa með þetta — og ég skil það, það auðvitað var ekki viðbúið að hæstv. ráðherra myndi opinbera nálgunina svona hratt. Ég reiknaði með að þetta myndi gerast síðar í ferlinu. Það sem blasir við er að hæstv. ráðherra velur það að skipa fyrri fulltrúa Viðreisnar en gera breytingar á öllum öðrum póstum. Þetta er það sem óttast var. Í þessu er engin gagnrýni á valnefndirnar. Valnefndirnar lögðu til tvo fulltrúa (Forseti hringir.) á hvern póst samkvæmt reglunum.