156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

Skipan ráðherra í valnefndir vegna vals í stjórnir fyrirtækja.

[10:43]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir ítrekaða spurningu. Ég sakna þess þó í yfirferð hans að hann hafi ekki gert greiningu á hugsanlegum pólitískum bakgrunni annarra. Það gerði ég ekki en hann er greinilega upptekinn af því. Ég sting upp á því við hann að hann geri slíka greiningu áður en hann sakar ráðamenn hér um að halla máli í sinni ákvarðanatöku.