áhrif af hækkun veiðigjalda.
Virðulegi forseti. Talandi um greiningar. Í gær kynnti fjármála- og efnahagsráðherra áform um tvöföldun veiðigjalda frá og með 1. janúar 2026. Sú ákvörðun er ekki bara umdeild, hún er illa undirbúin og í andstöðu við þau viðmið og lög sem Alþingi hefur sjálft sett um opinber fjármál og vandaða stjórnsýslu. Sjálfur hæstv. ráðherra hefur ítrekað sagt að tryggja verði vandaða áætlanagerð ríkisins. Fyrir tíu árum voru lög um opinber fjármál samþykkt hér á Alþingi. Í 1. og 6. gr. laganna er kveðið skýrt á um skyldu stjórnvalda til að tryggja festu, fyrirsjáanleika og vandaðan undirbúning ákvarðana sem varða tekjuöflun ríkisins. Hér er ríkisstjórnin að stefna á tvöföldun á skattlagningu á tiltekna atvinnugrein en það er hvergi að finna heildstætt og vandað mat á því hvernig hækkunin leggst á ólík fyrirtæki, byggðarlög eða atvinnugreinar og takmarkað samráð virðist hafa átt sér stað við þá sem breytingin snertir hvað mest. Meira að segja í frumvarpinu sjálfu um hækkun veiðigjalda, sem nú er í samráðsgátt, kemur eftirfarandi fram, með leyfi forseta, „… verður að telja að frumvarpið verði það að lögum muni hafa óveruleg áhrif á þau byggðarlög þar sem sjávarútvegsfyrirtæki eru staðsett.“ Þetta er eiginlega með ólíkindum. Hér er einnig verið að grafa undan jafnrétti og atvinnufrelsi með íhlutun sem hefur ósamhverf og ólík áhrif eftir landshlutum og atvinnugreinum.
Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hvaða greiningar liggja að baki þessari tvöföldun veiðigjalda sem sýna að ákvörðunin sé í samræmi við lög um opinber fjármál eins og 1. og 6. gr. kveða á um? Og í öðru lagi: Fellur ákvörðunin að heildstæðri stefnu stjórnvalda um skattlagningu auðlinda eða er einfaldlega verið að bregðast við skammtímatekjuþörf vegna fjárlaga næsta árs?