áhrif af hækkun veiðigjalda.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen enn fyrir spurninguna. Ég verð að viðurkenna að ég er nú svolítið hissa á henni. Þingheimi hlýtur að vera ljóst að lögin sem hér er verið að breyta eru í eðlinu óbreytt, þ.e. að skipting þessa hagnaðar, sem Alþingi sjálft ákvað að væri sanngjörn, 33% þjóðarinnar, 67% til útgerðarinnar, er óbreytt. Hún er óbreytt. Það eina sem verið er að gera er að sannreyna hvort tekjutölurnar sem notaðar eru í útreikningunum séu raunhæfar eða ekki. Það er eina breytingin. Nú er það þannig að alls staðar þar sem svona skattheimta fer fram, og það er nærtækast að horfa þar til Noregs, er ekki miðað við tölur sem fyrirtækin sjálf gefa upp um tekjur sínar í viðskiptum við sjálf sig. Það er aldrei gert. Það er miðað við einhver ytri verð. Í tilfelli t.d. norska olíusjóðsins er miðað við heimsmarkaðsverð á olíu sem er hrávara eins og þorskur eða annar fiskur. Það er með hreinum ólíkindum að halda því fram að hér sé um að ræða einhverja grundvallarbreytingu á stefnu stjórnvalda í því hvernig þessi arður skiptist. Það er einungis verið að leiðrétta fyrir augljósum galla, sem meira að segja lá fyrir vegna þess að ég veit ekki betur en að fyrri þing hafi samþykkt að ýkja tekjur í uppsjávarveiðum um 10%. Hvaðan komu þau 10%? Af þeirri vitneskju að þetta væri ekki rétt skráð.