156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

áhrif af hækkun veiðigjalda.

[10:48]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir en reyndar svaraði hann ekki spurningum mínum. Hvernig tryggjum við traust á opinberri fjármálastjórn ef meiri háttar skattbreytingar eru kynntar án fullnægjandi greiningar á áhrifum, fyrirsjáanleikinn er enginn og það er lítill sem enginn tími gefinn til samráðs? Þetta snýst ekki um afstöðu til veiðigjalda sem slíkra heldur um stjórnsýslulega ábyrgð, lagalega skyldu og traust á stefnumörkun stjórnvalda í opinberum fjármálum. Það er ekki hægt að sætta sig við breytingu á skattaumhverfi heillar atvinnugreinar sem er svona illa undirbúin. Við höfum lagt áherslu á það að lög um opinber fjármál séu ekki formsatriði heldur skilyrði fyrir ábyrgri stefnumótun og að ráðast í tekjuhækkun með þessum hætti án fullnægjandi áhrifamats er brot á þeirri ábyrgð. Við höfum áður rætt mikilvægi laga um opinber fjármál sem festu og fyrirsjáanleika en nú blasir við að þau eru virt að vettugi. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra og vona að hann svari spurningu minni: Mun hæstv. ráðherra skuldbinda sig til að leggja fram ítarlegt mat á áhrifum breytingarinnar á ólík byggðarlög og fyrirtæki, svo sem litlar útgerðir og þær stærri, sjómenn og aðra hagaðila, og tryggja að Alþingi fái slíkt mat í hendur áður en ákvörðunin tekur gildi?