áhrif af hækkun veiðigjalda.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir síðari spurningu. Raunar fyndist mér eðlilegra að hún hefði stillt spurningunni svona upp: Hvernig í ósköpunum datt Alþingi á sínum tíma í hug að leggja til grundvallar, við mat á tekjum, tölur sem verða til í innri viðskiptum innan fyrirtækja, þ.e. skattstofn sem sá sem á að greiða skattinn fær að velja sjálfur hvað er stór? Hvers konar fyrirkomulag er það eiginlega? Ég bara skil ekkert í þessari umræðu um ábyrgð hér þegar þetta er sagan. Varðandi það að leggja mat á áhrifin þá er það þannig að slíkt mat fór fram. Það hefur verið metið hver áhrifin eru á atvinnugreinina. Og ég vil minna á að í greinum eins og sjávarútvegi, þar sem aðgengi er að takmörkuðum auðlindum, verður til umframhagnaður og að skattleggja hann er skilvirk leið til að afla tekna.