156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

mat á áhrifum hærri veiðigjalda á nýsköpun í sjávarútvegi.

[10:51]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Nú hefur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ákveðið að leggja fram frumvarp sem felur í sér tvöföldun á veiðigjaldi, skattahækkun sem ætla má að bitni fyrst og fremst á landsbyggðinni og fiskvinnslu í landinu. Boðuð hækkun skapar beinlínis hvata til að flytja hráefnið óunnið úr landi. Þar með verður Ísland ekki einungis af verðmætasköpun heldur líka forsendum fyrir áframhaldandi nýsköpun og tækniþróun á þessu sviði. Mörg fyrirtæki, eins og Marel, Kerecis og KAPP, eiga það sameiginlegt að hafa byggt tilvist sína beint eða óbeint á þekkingu og þörfum fiskvinnslunnar. Þetta eru alþjóðleg hátæknifyrirtæki sem urðu til vegna aðstæðna og fjárfestingar í sjávarútvegi. Samkvæmt tölum Hugverkastofu tengjast um 56% gildra einkaleyfa á Íslandi sjávarútvegi. Já, 56%. Mörg þeirra byggja á rannsóknum og þróun innan fiskvinnslu og fela mörg í sér gífurlega verðmætasköpun og framþróun. Ef veiðigjaldið verður hækkað með þessum hætti og fiskvinnsla dregst saman eða hverfur að öllu eða að hluta til úr landi, hver verða þá áhrifin á möguleika Íslands til að vera áfram leiðandi í tækni og hugverkum tengdum sjávarútvegi? Hvað verður um fyrirtæki sem hugsanlega gætu orðið næsta Marel eða næsta Kerecis? Verða þau þá stofnuð í Póllandi eða Litáen, þar sem fiskurinn verður unninn, í stað þess að nýta íslenskt hugvit og sköpunarkraft? Því spyr ég hæstv. ráðherra: Hefur verið gert heildstætt áhrifamat á áhrifum þessarar skattahækkunar á nýsköpun, hugverkaiðnað og framtíðartækifæri Íslendinga á þessu sviði, fjórðu útflutningsstoð landsins? Ef ekki, er ráðherrann tilbúinn að sitja yfir því að draumurinn um Ísland sem Kísildal nýsköpunar í sjávarútvegi renni okkur svo sviplega úr greipum?