mat á áhrifum hærri veiðigjalda á nýsköpun í sjávarútvegi.
Frú forseti. Svör ráðherra vekja nokkra undrun, sérstaklega þegar farið er að ræða um lög um opinber fjármál sem við tökum síðan fyrir í næstu viku. Það eru ekki markaðir tekjustofnar í fjárlögunum, í fjárlagavinnu, í fjármálaáætlun eða annars staðar, það er bara ekki þannig. Alþingi setti lög um opinber fjármál í desember 2015 þar sem þessu var hætt, svo að þingheimi sé þetta algerlega ljóst. Þessi málflutningur er bara rangt upp settur.
En að efninu: Hér er ríkisstjórnin að tvöfalda skatta á heila atvinnugrein með fyrirsjáanlegum áhrifum á arðsemi fiskvinnslu en ráðherrann er hér að fría sig allri ábyrgð á þeim afleiðingum sem það mun hafa í för með sér. Þegar ríkið skapar meðvitað skattumhverfi sem dregur úr samkeppnishæfni og ýtir undir útflutning hráefnis þá verður ekki annað séð en að ríkið beri einnig ábyrgð á afleiðingunum. Það er ekki hægt að hækka skatta (Forseti hringir.) og þvo sér síðan um hendur. Ef nýsköpunarumhverfi veikist, ef færri hugmyndir fá rými til að verða að veruleika, vegna þess að fiskurinn er unninn annars staðar, hver ber þá ábyrgð? (Forseti hringir.) Telur ráðherra virkilega að markmið um verðmætasköpun, nýsköpun og hugverkavernd (Forseti hringir.) náist með því að veikja grunninn sem þetta byggir á?