mat á áhrifum hærri veiðigjalda á nýsköpun í sjávarútvegi.
Frú forseti. Ég bið forseta að sýna hv. þingmanni mildi vegna þess að það var augljóst að hann tók upp vitlaust blað og notaði fyrri hlutann af ræðunni til að lesa það upp. Við vorum ekkert að ræða opinber fjármál hérna. Fyrst skulum við hafa það á hreinu að við erum að tala um gjöld á grein fyrir afnot af þjóðareign, takmarkaðri þjóðareign. Í öðru lagi er ég ekki að fría mig ábyrgð. Ég hef þegar greitt atkvæði þess efnis að málið fari út úr ríkisstjórn og inn til þingflokka og inn til þingsins og mun greiða atkvæði með þessu frumvarpi þegar það kemur til afgreiðslu. Varðandi nýsköpunarumhverfið þá bara endurtek ég það sem ég sagði, að það er ekki svona einfalt að það hrynji við það að fyrirtæki borgi eðlilegt gjald fyrir afnot sín af auðlindinni. Ég á nú reyndar eftir að sjá það að útgerðin (Forseti hringir.) gefi frá sér þessar aflaheimildir og hætti að veiða. Við í menningar- og nýsköpunarráðuneytinu munum standa vörð um (Forseti hringir.) styrkjakerfi og stuðningskerfi nýsköpunar hér eftir sem hingað til.