156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

Breyting á lögum um veiðigjald.

[10:59]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Nú hefur ríkisstjórnin kynnt áform sín um tvöföldun á veiðigjöldum. Það er nú þannig að við í Framsókn skiljum að mögulega megi ná fram fjármunum í ríkiskassann úr sjávarútvegi og því er endurskoðun auðlindagjalda sjálfsögð. En það verður að gerast á grundvelli traustra greininga og ábyrgra ákvarðana. (Gripið fram í.) Hvaða áhrif munu þessar breytingar hafa, ekki aðeins á rekstur útgerða heldur einnig á byggðir landsins, verðmætasköpun í greininni, tekjur þjóðarbúsins og rekstur sveitarfélaga? Liggja þessar greiningar fyrir? Hefur verið farið í þær? Þá væri áhugavert að fá að sjá þær.

Sveitarfélög sem byggja allt sitt á afkomu sjávarútvegs hafa lýst yfir áhyggjum sínum af því hvert er verið að fara og, virðulegur forseti, því endurtek ég spurningu til hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra: Hefur þessi greining farið fram? Hvaða áhrif hefur þetta á sveitarfélögin? Hvaða áhrif hefur þetta á byggðarlög landsins o.s.frv.? Hvaða áhrif hefur þetta á smærri útgerðir? Formaður smærri útgerða hefur lýst áhyggjum sínum af þessu. Það þýðir ekki bara að horfa á stærstu útgerðir landsins þegar verið er að tala um arðinn af sjávarauðlindinni. Við verðum að horfa á þetta í heild sinni og smærri útgerðir hafa lýst yfir miklum áhyggjum þar sem allt er undir. Það er vinnsla í landi og það eru sveitarfélögin sem byggja sína afkomu á því að fiskur sé dreginn upp og að það sé arður af því sem verið er að gera.