156. löggjafarþing — 21. fundur, 27. mars 2025.
Breyting á lögum um veiðigjald.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir hans ágætu og málefnalegu spurningu. Tilfellið er að skoði hv. þingmenn frumvarpið kemur í ljós að þar er gert ráð fyrir breytingum á svokölluðu frítekjumarki sem beinlínis er til þess að hlífa nákvæmlega þeim fyrirtækjum sem hv. þingmaður vék að í sínu máli, þ.e. litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Þetta er gert bæði með hækkun og þrepaskiptingu frítekjumarksins sem hefur það að markmiði að áhrif á þessa aðila séu dempuð.