156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

Breyting á lögum um veiðigjald.

[11:03]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég þakka Þórarni Inga Péturssyni fyrir síðari spurningu. Hann hefur sennilega ekki verið í salnum þegar ég fór yfir rannsóknir á verðmyndun á fiski í Noregi og á Íslandi sem sýna nú að þar sem markaðir eru á báðum stöðum er verðið hið sama þannig að ég veit ekki alveg hvað hann er að vísa til þar, en ég get boðið honum að ræða það frekar við hann hafi hann áhuga á því.

Varðandi frítekjumörk þá virka þau þannig að afslátturinn teygir sig eitthvað ákveðið upp eftir stærð fyrirtækjanna en hefur auðvitað áhrif á greiðslur fyrirtækjanna miklum mun hærra upp eftir dreifingunni, raunar alla leið, af því að þetta er réttur sem allir njóta. Þannig að markmiðið er einmitt að taka tillit til nákvæmlega þeirra fyrirtækja sem hv. þingmaður vék að.