Orkumál og staða garðyrkjubænda.
Virðulegi forseti. Ísland er í einstakri stöðu þegar kemur að orkumálum. Við erum eitt fárra landa í heiminum sem nýtir nær eingöngu endurnýjanlega orku fyrir rafmagnsframleiðslu og húshitun. Það er eitthvað sem við getum verið ákaflega stolt af. En á sama tíma stöndum við frammi fyrir stórum áskorunum. Hvernig tryggjum við áframhaldandi uppbyggingu á sjálfbærri nýtingu auðlinda á sanngjarnan og hagkvæman hátt á sama tíma og við verndum náttúruna og víðerni Íslands fyrir komandi kynslóðir? Hvernig tryggjum við að sú orka sem verður til rati til íbúa þessa lands á sanngjörnu verði og að lítil og meðalstór fyrirtæki þurfi ekki að mæta stóriðju í samkeppni um orkuna með tilheyrandi óvissu og ófyrirsjáanleika um verðlag?
Þetta eru grundvallarspurningar sem við stöndum frammi fyrir. Tækifærin eru sannarlega til staðar til að halda áfram að byggja upp atvinnuveg og verðmætasköpun með grænni orku því að Ísland er raunverulega í einstakri stöðu. Við þurfum að framleiða meira rafmagn og tryggja orku til framtíðar og á sama tíma er nauðsynlegt að stórefla flutningskerfi raforku. En við þurfum líka að forgangsraða orkunni í þágu íbúa og minni fyrirtækja sem nú nota tæplega 20% af allri þeirri orku sem er framleidd. Stóriðjan nýtir rest.
Íslendingar eru almennt mjög stoltir af matvælaframleiðslu sem fer fram hér á landi. Íslenskur landbúnaður er með sérstöðu því að við búum yfir hreinni náttúru, grænni orku og tæru vatni, auðlindum sem gefa okkur einstakt forskot þegar kemur að matvælaframleiðslu. Við eigum margt að þakka því hugvitssama fólki sem í fyrsta lagi áttaði sig á því hvernig við gætum nýtt auðlindir okkar til að hita upp hús og búa til rafmagn og í öðru lagi því ágæta fólki sem datt í hug að nýta þessar sömu auðlindir til að rækta grænmeti og aðra garðyrkju. En nú eru blikur á lofti. Garðyrkjubændur hafa horft á rafmagnsreikningana hækka með lygilegum hætti síðustu misseri. Um síðustu áramót var sala á raforku til garðyrkjubænda búin að hækka um 100% á fjórum árum og miðað við spá markaðarins þá mun hún jafnvel hækka aftur um 100% næstu fjögur árin að sögn formanns búgreinadeildar garðyrkjubænda. Garðyrkjubændur þurfa að reiða sig algjörlega á rafmagn í sinni framleiðslu og því er birtingarmyndin sérstaklega slæm hjá þeim.
En hækkandi raforkuverð snertir mun fleiri. Á fundi á Eyrarbakka nú í vikunni hitti ég kúabónda sem framleiðir 37.000 lítra af mjólk á mánuði. Hann sagði mér að í mars árið 2022 hafi hann greitt 180.000 kr. fyrir framleiðsluna en nú í mars 2025 greiðir hann 370.000 kr. Reikningurinn hefur meira en tvöfaldast á þremur árum. Dæmin eru mun fleiri, svo ekki sé minnst á matvælaframleiðendur á köldum svæðum sem þurfa mörg að reiða sig á olíu. Ísland flytur inn 1–1,5 milljónir tonna af olíu á hverju ári. Þessu verðum við að breyta.
Í Bláskógabyggð eru margir garðyrkjubændur sem tryggja okkur fyrsta flokks íslenskt grænmeti alla daga, allt árið um kring. Á síðustu sjö árum hefur annars konar orka til garðyrkjubænda í Bláskógabyggð lækkað um 8%. Takið eftir að ég sagði að orka til garðyrkjubænda hefur lækkað um 8% að raunvirði á síðustu sjö árum. Þarna er ég að vísa til verðs á varmaorku, heitu vatni sem sveitarfélagið rekur og stendur undir sinni samfélagslegu ábyrgð um að tryggja orku til matvælaframleiðslu á hagkvæmu verði og þannig styðja við garðyrkjubændur. Það er ekki hægt að segja það sama um raforkuna. Raforkukerfið var markaðssett með innleiðingu Evrópuregluverks í upphafi þessarar aldar og nú eru að koma til sögunnar uppboðsmarkaðir með raforku, bæði á vegum Landsvirkjunar og Landsnets. Frá apríl 2024 hefur raforka verið seld í gegnum uppboðsmarkaðinn Vonarskarð. Síðan þá hefur verð á raforku á þeim markaði hækkað um ríflega 30%.
Virðulegur forseti. Ég vil biðja hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að fara yfir þær aðgerðir í orkumálum sem ríkisstjórnin er að ráðast í og þær lagabreytingar sem eru í farvatninu. Hvernig hyggst ráðherra bregðast við aukinni eftirspurn umfram framleiðsluaukningu sem getur haft víðtæk áhrif á verðmætasköpun í landinu, auk verðhækkana á raforku til heimila og grunnatvinnugreina? Hvað ætlar ráðherra að gera til að bregðast við ófyrirsjáanleika í verðlagningu raforkumarkaða og tryggja almenningi og minni fyrirtækjum umgjörð og fyrirsjáanleika í verðlagningu á raforku? Hvernig ætlar hæstv. ráðherra að bregðast við því versnandi rekstrarumhverfi sem garðyrkjubændur búa við með ört hækkandi raforkukostnaði, bæði til skemmri og lengri tíma?
Að lokum: Nýjasta tækni í ljósabúnaði fyrir ylrækt sparar mikla orku án þess að skerða ljósmagn. Garðyrkjubændur leggja nú í kostnaðarsama fjárfestingu til að uppfæra perur í búnaði sínum samkvæmt stöðlum úr Evrópulöggjöfinni. Kollegar þeirra í Evrópu fá til þess styrk frá Evrópusambandinu. (Forseti hringir.) Í dag eru hins vegar engir slíkir styrkir veittir á Íslandi. Stendur til að bæta úr því og veita bændum stuðning til að skipta yfir í orkusparneytnari og umhverfisvænni valkost?