156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

Orkumál og staða garðyrkjubænda.

[11:10]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir að standa fyrir þessari sérstöku umræðu og fyrir að gefa mér tækifæri til að fara aðeins yfir það sem er efst á baugi hjá okkur í orkumálum og hefur verið núna fyrstu 96 dagana í embætti.

Við skulum bara byrja á framboðshliðinni af því hv. þingmaður spurði hvernig yrði brugðist við þessari auknu eftirspurn. Það hefur auðvitað ríkt hægagangur þegar kemur að nýframkvæmdum á sviði orkuöflunar og þegar kemur að uppbyggingu flutningskerfis, sem hefur grafið undan orkuöryggi, grafið undan verðmætasköpun og byggðaþróun. Þetta er óboðlegt ástand sem ný ríkisstjórn ætlar að ráða bót á, og hvað erum við að gera?

Fyrsta lagafrumvarpið mitt á Alþingi, sem ég lagði fram í febrúar, miðar að því að eyða óvissu vegna dómsins sem féll vegna Hvammsvirkjunar, virkjunarleyfis Hvammsvirkjunar. Þar erum við að taka á atriðum í lögum um stjórn vatnamála sem hafði verið bent á fyrir löngu að þyrfti að laga og nú er loksins verið að taka á því. Ég kom líka rakleitt með rammaáætlun hérna inn í þingið þar sem gert er ráð fyrir að Holtavirkjun, Urriðafossvirkjun og Skrokkölduvirkjun fari í orkunýtingarflokk og ég hef sett það markmið að hér verði lögð fram og samþykkt ný rammaáætlun á hverju einasta löggjafarþingi næstu árin og þar verða raunhæfir og hagkvæmir kostir að rata í orkunýtingarflokk.

Á næstu dögum mun ég leggja fram frumvarp á Alþingi sem felur í sér mjög róttæka einföldun leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála. Þar verður mælt fyrir um að verkefni í orkunýtingarflokki njóti sérstakrar forgangsmeðferðar, en við ætlum líka að breyta lagaumgjörð rammaáætlunar til að tryggja aukna festu í ferlinu. Við ætlum að binda það í lög að stjórnvöld setji stefnu um raforkuöflun á fjögurra ára fresti með tölulegum markmiðum og að tekið sé mið af þessari stefnu í öllu ferli rammaáætlunar við röðun virkjunarkosta. Þetta er grundvallarbreyting. Hér erum við að ryðja burt hindrunum og liðka fyrir framkvæmdum og það er skýr samfella í því sem við erum að gera. Um leið erum við að fara að losa um raforku, sem hingað til hefur verið nýtt til húshitunar, með því að ráðast í stærsta átak í leit og nýtingu jarðhita sem ráðist hefur verið í á þessari öld.

Hv. þingmaður spyr líka með almennari hætti um umgjörð raforkumarkaðar og um forgang almennra notenda. Ríkisstjórnin er með skýr fyrirheit um nákvæmlega þetta í sinni stefnuyfirlýsingu. Við ætlum að verja heimili og fyrirtæki, við ætlum að tryggja þeim forgang og ég hef lagt áherslu á að þetta sé gert með lagabreytingum strax núna á fyrsta ári þessarar ríkisstjórnar. En hér verðum við líka að vanda til verka. Það er ekki sama hvernig við gerum þetta. Þess vegna ætlum við að gera þetta í tveimur skrefum. Annars vegar með frumvarpi sem ég hef þegar lagt fram hér á þingi til að skerpa á forgangsröðun þegar upp koma óviðráðanlegar aðstæður í raforkukerfinu, og hins vegar með stærri og almennari breytingum í haust til að laga lagaumgjörð raforkumarkaðar og tryggja forgang almennings. Núna erum við að greina og áhrifameta nokkrar mismunandi útfærslur á þessu og ég hlakka til að sýna betur á þau spil í sumar.

Hv. þingmaður minntist líka á uppboðsmarkaði raforku og áhrif markaðsvæðingarinnar. Í þessu samhengi vil ég benda á mjög mikilvægt frumvarp sem er að koma hingað inn í þingið, sem er búið að samþykkja út úr þingflokkum að því er ég best veit, frumvarp um hátternisreglur í raforkuviðskiptum þar sem er kveðið á um skráningarskyldu og eftirlit með rekstri þessara viðskiptavettvanga. Þar erum við að taka fast á markaðsmisnotkun og innherjasvikum á raforkumarkaði.

Forseti. Ég er sammála hv. þingmanni að staðan á orkumarkaði er alvarleg og hún bitnar með mjög ójöfnum hætti á fólki og fyrirtækjum, og garðyrkjubændur hafa orðið sérstaklega illa úti vegna hækkunar raforkuverðs. Ég get alveg haldið áfram að telja upp svona almennar aðgerðir en fyrir garðyrkjubændur þá duga þær ekkert til. Þar þarf að ráðast í sértækar aðgerðir og gera það strax. Það eru áratugir liðnir síðan stjórnvöld réðust síðast í sérstakan fjárfestingarstuðning í þágu garðyrkjubænda og í dag er engum slíkum stuðningi til að dreifa. Nú verður breyting þar á, virðulegi forseti, vegna þess að ég hef ákveðið að verja 160 millj. kr. í fjárfestingarstuðning við garðyrkjubændur á þessu ári og því næsta, með áherslu á aukna orkunýtni, með áherslu á LED-lýsingu og annan orkusparandi búnað.

Það er einhugur um þetta í ríkisstjórn. Þetta var rætt í ríkisstjórn núna í vikunni og ég er sannfærður um að þetta fjárfestingarátak muni skila sér í lægri orkureikningum fyrir bændur, í minni niðurgreiðsluþörf af hálfu ríkissjóðs og í auknum orkusparnaði fyrir samfélagið allt og auðvitað halda aftur af verðinu á góðu íslensku grænmeti. Ég hlakka til að kynna betur útfærslu þessara aðgerða og þessa fjárfestingarátaks í næstu viku. Þetta er ákvörðun sem tekin hefur verið á vettvangi ríkisstjórnar og ég hlakka til að fylgja þessu eftir.