156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

Orkumál og staða garðyrkjubænda.

[11:15]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Árið er 2025. Það eru 100 ár síðan Íslendingar fóru að nýta jarðvarma til ylræktar. Atvinnugreinin hefur þróast og þroskast á þann hátt að í dag erum við í fremstu röð hvað varðar árangur í uppskeru og í sérflokki hvað varðar gæði. Í Evrópu er stærsti hluti garðyrkju keyrður áfram með jarðefnaeldsneyti en við á Íslandi erum með algera sérstöðu að geta ræktað okkar holla og góða grænmeti allt árið um kring á grænni orku. Íslenskir garðyrkjubændur rækta grænmeti í gróðurhúsum án allra eiturefna, vökva með tæru lindarvatni og eru nálægt markaðnum sem tryggir hámarksferskleika. Nýjasta tækni í gróðurhúsastýringu framkallar kjöraðstæður fyrir plönturnar sem skila hámarksgæðum til neytenda. Breyttar aðstæður í heiminum í dag sýna okkur hversu miklu máli fæðuöryggi skiptir, að vera sjálfum okkur næg. Fáir hefðu talað um að ylrækt og önnur matvælaframleiðsla myndu varða þjóðaröryggi en það er staðan í dag.

Árið 2002 var gerður starfssamningur til að stuðla að heilsársræktun með upplýstum gróðurhúsum hituðum upp með jarðvarma. Á þeim stað eru flest gróðurhús í dag. Þó að uppbygging í greininni hafi verið góð frá aldamótum eru blikur á lofti. Á síðustu fjórum árum hefur raforka til garðyrkjubænda hækkað umfram verðlag. Um síðustu áramót hækkaði raforka til garðyrkjubænda um heil 25%. Raforka er snar þáttur í rekstrarkostnaði garðyrkjubænda eða um 30%. Með síðustu 25% viðbótarhækkun um áramótin var greinin slegin þungu höggi og hangir hún á rekstrarlegri bjargbrún nú um mundir. Ef við Íslendingar viljum halda áfram að framleiða hágæðavöru með orkuauðlindum okkar verður að tryggja raforku á sanngjörnu verði. Snúum vörn í sókn og aukum neyslu á heimsins besta grænmeti. Bætum fæðuöryggi og lýðheilsu þjóðarinnar. Eflum lítil og meðalstór fyrirtæki, enda eru þau mikilvæg samfélögum sínum þar sem þau eru, og segjum: Já, takk. Meira íslenskt grænmeti.