Orkumál og staða garðyrkjubænda.
Virðulegi forseti. Það er sannarlega ánægjuleg tilviljun að nú þegar ég tek sæti í fyrsta sinn á Alþingi skuli einmitt þetta mál verða til umfjöllunar hér í sérstökum umræðum. Ég vil þakka málshefjanda, hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur, kærlega fyrir að opna umræðuna um þetta mikilvæga mál og sömuleiðis vil ég þakka hæstv. ráðherra fyrir greinargóð svör. Ég, líkt og málshefjandi, kem af Suðurlandi, nánar tiltekið frá Hveragerði. Þar þekkjum við heldur betur til nýtingar á gæðum jarðar. Á Suðurlandi má jafnframt finna marga af stærstu ylræktendum landsins sem og sum af stærstu orkumannvirkjum landsins.
Virðulegi forseti. Hér hafa þær áskoranir sem íslensk garðyrkja glímir við og tengjast síhækkandi raforkuverði verið ágætlega raktar. Ný staða á orkumarkaði hefur haft alvarlegar afleiðingar fyrir marga sem háðir eru góðu aðgengi að orku. Það mikilvægasta af öllu er að hér reynum við að hverfa frá því vinnulagi að plástra yfir vandamálin jafn skjótt og þau koma upp. Nú verðum við einfaldlega að láta verkin tala og tryggja fyrirsjáanleika í rekstrarumhverfi ylræktenda og þótt fyrr hefði verið.
Virðulegi forseti. Það er ekkert eðlilegt við það að raforkuverð skuli vera að sliga bændur, svo ekki sé minnst á almenning í landi sem á meira en nóg til af rafmagni. Nú er kominn tími til að forgangsraða þeim gæðum á sanngjarnari hátt. Fólki í stjórnmálum er tíðrætt um að nú standi hitt og þetta á tímamótum. Íslenskir bændur og ekki síst ylræktendur hafa áratugum saman verið þolendur tímabundinna aðgerða, plástra, og hafa svo endurtekið mátt lifa við það að þurfa að fara bónleiðir til búðar í hvert sinn sem stjórnmálamenn hafa búið til ný tímamót handa þeim. Það er kominn tími til, virðulegi forseti, að bændum sé sýnd sú virðing að þeim sé búið rekstrarumhverfi sem er fyrirsjáanlegt án þess að þurfa að leita til hins opinbera með reglulegu millibili sem slær sig svo til riddara við hvern plástur. Ég treysti engum betur en þessari ríkisstjórn til að breyta þessu til betri vegar í eitt skipti fyrir öll.