Orkumál og staða garðyrkjubænda.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa umræðu sem stjórnarliðar efna hér til, og að eiga samræður um þetta. Ég er auðvitað einnig ánægður með þann hug sem ég hef heyrt í ræðum þeirra, bæði framsögumanns, og þakka fyrir það, og hæstv. ráðherra, um fyrirætlanir. Það er auðvitað fullkomlega nauðsynlegt, og við styðjum það, að fara í frekari virkjanir hér á landi til að hægt sé að hafa samkeppnisgrundvöll gagnvart öðrum eldsneytisgjöfum hér á landi sem er auðvitað grundvöllur undir það að hægt sé að veita orku til garðyrkju og annarra fyrirtækja á viðráðanlegu verði. Á undanförnum árum hefur verið mikil hækkun á raforku hér á landi og það er ekki ný saga. Síðustu fjögur, fimm ár hefur verið stanslaus hækkun á raforkuverði sem hefur komið mjög illa niður á framleiðslu garðyrkjubænda. Þetta á sér orsakir í innleiðingu orkupakka Evrópusambandsins. Beinar afleiðingar eru þær að núna hefur samkeppni á raforkumarkaði orðið til þess að raforka er að hækka til heimila og fyrirtækja.
Ég er einnig ánægður með yfirlýsingu hæstv. ráðherra um að hann ætli að fara að styrkja garðyrkjubændur með 160 milljónum á þessu ári og næsta ári. Við eigum eftir að sjá hvernig það verður framkvæmt. Við erum hér á landi með einstakt tækifæri til að framleiða grænmeti og ávexti fyrir okkur hér á hagkvæman og hreinlátan hátt með hreinum orkugjöfum, með hreinu vatni, með hreinum jarðvegi, án eiturefna þannig að við verðum að grípa þetta tækifæri. Ég kem frekar að þessu í næstu ræðu.