156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

Orkumál og staða garðyrkjubænda.

[11:23]
Horfa

Elín Íris Fanndal (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa umræðu. Framleiðsla garðyrkjuafurða hefur á síðustu áratugum eflst til muna á Íslandi. Þótt landið sé harðbýlt hafa garðyrkjubændur unnið mikið þrekvirki við að koma upp aðstöðu til að rækta hér matvæli sem áður þótti óhugsandi að rækta á norðurslóðum. Íslenskur almenningur hefur vegna framþróunar í garðyrkju haft greiðan aðgang að vörum sem áður þóttu munaðarvörur. Aðgengi að ódýrri orku hefur átt stóran þátt í uppbyggingu garðyrkju á Íslandi. Raforka er nauðsynleg í ylrækt til að lýsa og hita gróðurhús. Raforkuverð hefur því bein áhrif á það hversu mikið garðyrkjubændur geta framleitt og á hvaða verði þeir selja afurðir sínar til neytenda.

Sú sem hér stendur kemur úr hinu víðfeðma Suðurlandskjördæmi. Þar eru víðs vegar kjöraðstæður til garðyrkjuræktar sem ættu að leiða til þess að framleiðnin nái að blómstra en eins og alþjóð veit er það ekki sú staðreynd sem blasir við okkur. Garðyrkjubændur hafa árum saman barist allt of lengi í bökkum sökum gegndarlausrar hækkunar á raforkuverði. Eins og málshefjandi, hv. þm. Ása Berglind Hjálmarsdóttir nefndi hér áðan, þá hefur raforkuverð hækkað um allt að 100% á síðastliðnum fjórum árum eða í tíð síðustu ríkisstjórnar. Garðyrkjubændur greiða allt að 60% rekstrarkostnaðar í rafmagn. Mikilvægt er að horft sé til farsælni í rekstri garðyrkjubýla því í ljósi versnandi ástands í alheimsmálum þurfum við að geta treyst því að þjóðin sé sjálfbær og hægt sé að rækta grænmeti hér heima, vilji svo til að það skapist neyðarástand í landinu.

Ljóst er að raforka er ein af grunnstoðum íslenskrar garðyrkju. Stöðugur aðgangur að rafmagni og orkuöryggi eru lykilatriði til að tryggja sjálfbæra, samkeppnishæfa matvælaframleiðslu. Ég hvet því stjórnvöld til að hafa þarfir garðyrkjubænda í huga þegar orkulöggjöf er mótuð og stuðla með því að íslensk matvælaframleiðsla blómstri.