Orkumál og staða garðyrkjubænda.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir að hefja umræðuna og hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu hér og ég fagna því að það sé verið að horfa sérstaklega á málefni garðyrkjubænda því að ég held að við getum öll hérna inni verið sammála um það að garðyrkjan á Íslandi er — þegar við horfum á samtengingu orkumála og matvælaframleiðslu þá er það þarna sem Ísland á sín stærstu tækifæri að mörgu leyti og hér verðum við að styðja við. Þess vegna er ég mjög ánægð að heyra um þessar aðgerðir en þetta er í takt við það sem Framsókn hefur lagt fram. Þegar á þessu þingi höfum við talað fyrir fimm tillögum sem ég hef m.a. deilt með hæstv. ráðherra. Ég saknaði kannski smá að við tölum ekki meira um samstarf og samvinnu og óska þess að við tölum meira um „við hér í þingsal“ heldur en hvað ráðherrar eða ríkisstjórn gera. Við erum öll að reyna að leysa þessi mál saman.
Mig langar til að hrósa þessu með raforkumarkaðinn, það er tími til kominn að hrósa þessu með raflýsinguna en benda jafnframt á að ég hef verið í samskiptum við bændur sem eru að upplifa að þrátt fyrir að þeir hafi fjárfest í betri búnaði þá er raforkukostnaðurinn samt sem áður að hækka. Þannig að það er ekki nóg fyrir okkur að hugsa um að þessi stuðningur komi á þessu ári og að frumvarpið komi í haust. Við vitum að frumvörp geta tekið langan tíma að fara í gegn. Garðyrkjubændur eru að leggja upp laupana og eru að glíma þessa glímu núna. Þess vegna langar mig að skora á hæstv. ráðherra að hugsa um einhverjar aðgerðir sem snúa að raforkuverðinu þangað til (Forseti hringir.) frumvarpið sem hann hefur boðað í haust er farið í gegn.