Orkumál og staða garðyrkjubænda.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa sérstöku umræðu og málshefjanda fyrir að óska eftir henni, hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur. Þetta er málefni sem við höfum rætt reglulega hér á þinginu síðustu ár og tengist náttúrlega stóru myndinni sem er framboð og eftirspurn á raforku. Ég verð að segja, svo ég hafi tækifæri til, að ég er miklu ánægðari með nýju Samfylkinguna varðandi orkumál þjóðarinnar heldur en gömlu Samfylkinguna fyrir bara tveimur, þremur árum. Við Sjálfstæðismenn getum upp til hópa verið mjög sammála hæstv. ráðherra í flestu sem hann hefur að gera á síðustu vikum og mánuðum í embætti. Það er gott mál að halda áfram með jarðhitaleitina sem hæstv. fyrrverandi ráðherra málaflokksins hóf hér fyrir tveimur, þremur árum með átaki. Þetta styðjum við. Þetta eru góð mál.
Það kemur fram í máli hv. þingmanna og við þekkjum það að íslenskt grænmetisframleiðsla er í sérflokki. Hún er hvergi betri og sjálfsagt hvergi hollari og með öllum þeim frábæru aðstæðum sem við höfum hér á landi en framboð og eftirspurn á raforku og sú staða sem hefur skapast hér, bæði á framleiðslu á raforkunni en síðan líka þessi vandamál sem tengjast annars vegar flutningskerfinu eða hins vegar dreifikerfinu eru eitthvað sem við þurfum virkilega að taka okkur tak í.
Svo er ég farinn að skynja þessa umræðu með Rarik-hlutann í dreifikerfinu, þær miklu framkvæmdir sem Rarik hefur þurft að fara í til að byggja upp kerfið og setja í jörð. Þriggja fasa væðingin hefur verið mjög krefjandi og spurning hvort ríkið gæti komið betur að því.
Klassísk grundvallarspurning sem þingheimur þarf kannski að spyrja sig er hvort við séum tilbúin til að greiða hluta af þeim arði (Forseti hringir.) sem við fáum af framleiðslu orkunnar til að framleiða heilnæman mat, hvernig við eigum að koma að þessu. (Forseti hringir.) Það hefur verið gert gríðarlega mikið á undanförnum árum (Forseti hringir.) en alltaf lendum við eftir á í stuðningi við grænmetis- og garðyrkjubændur.
Ég hef lokið máli mínu.
(Forseti (BHar): Tími til kominn, hv. þingmaður.)