156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

Orkumál og staða garðyrkjubænda.

[11:30]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda, hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur, fyrir frumkvæðið og hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir skýr svör hér rétt áðan. Orkuöflun er samofin verðmætasköpun í landinu og það skiptir öllu máli að tryggja hér orkuöryggi. Mig langar að geta þess að það er mikið jafnræðis- og jafnréttismál að tryggja næga orku um allt land. Þegar við tölum um orkuöryggi þá verðum við að horfa heildstætt á málefnið. Orkuöryggi verður ekki tryggt með einni virkjun eða einni raflínu. Víða um land er bæði þörf á meiri orku og fjölbreyttari kostum til húshitunar. Um daginn hittum við í þingflokki Viðreisnar t.d. fólk í mínu kjördæmi, m.a. á Hvammstanga. Þau lýstu því að þau búa við eilíft flökt á rafmagni sem stendur ákveðinni atvinnuuppbyggingu þar fyrir þrifum, t.d. á þessu sviði. Það skiptir ofboðslega miklu máli að ná tökum á þessari stöðu til þess að verðmætasköpunin geti fengið að dafna um allt land. Við þekkjum svo auðvitað stöðuna á Vestfjörðum og á köldum svæðum á Vesturlandi og svo stöðu garðyrkjubænda, sérstaklega á Suðurlandi og á fleiri stöðum. En rétt eins og kom fram í máli hæstv. ráðherra þá mun orkuverð og allar breytingar á því verða stærra viðfangsefni heimila og fyrirtækja landsins í framtíðinni. Þetta eru okkur svolítið nýjar aðstæður sem við munum þurfa að læra á því að aðgengi snýst ekki bara um að geta fengið rafmagn heldur líka um verð, verðið skiptir líka máli. Lykilorðin hér eru fyrirsjáanleiki og möguleiki á uppbyggingu. Ég hef heyrt í garðyrkjubændum sem lýsa afar vondri stöðu og því fagna ég umræðunni hér í dag og fagna því að ráðherra komi með skýr skilaboð vegna þess að það skiptir máli að setja tóninn strax, sérstaklega varðandi þennan styrk sem nú er að koma, 160 milljónir sem skipta miklu máli.

Við stöndum á krossgötum í orkumálum. Það þarf stefnu, aðgerðir og lausnir og það þarf að framkvæma þær strax með sértækum aðgerðum. Ég treysti núverandi ríkisstjórn mjög vel að leysa úr þessari stöðu enda hefur hún sýnt á þessum rúmlega 100 dögum sem hún hefur starfað að hún gengur í verkin.