156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

Orkumál og staða garðyrkjubænda.

[11:32]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég ætlaði að einnig að koma að ábendingu varðandi það sem hæstv. ráðherra kom aðeins inn á varðandi skiptingu á LED-ljósum í gróðurhúsum sem er fyrirskipuð samkvæmt Evróputilskipun. Við njótum núna undanþágu til að skipta núverandi ljósabúnaði út fyrir þessi ljós. Þessi undanþága rennur út eftir tvö ár en til að fá framlengingu á þessari undanþágu þarf að sækja um framlenginguna fyrir ágústmánuð á þessu ári. Ég spyr þess vegna hæstv. ráðherra hvort hann hyggist sækja um þessa undanþágu vegna þess að það að skipta út þessum ljósabúnaði hefur í för með sér gífurlega mikinn kostnað fyrir garðyrkjubændur. Ofan á alla þá hækkun sem hefur orðið á raforkuverði getur þetta orðið garðyrkjubændum fullkomlega ofviða. Það er mjög mikilvægt að það verði tekin afstaða í þessu, bæði til þess hvort ráðherra hyggist sækja um þessa framlengingu á undanþágunni og hvort ríkisstjórnin ætli að veita styrki á einhvern hátt til garðyrkjubænda til að ganga í það að skipta út þessum ljósabúnaði. Ég myndi gjarnan vilja fá svar við þessu þegar ráðherra fer í seinni ræðu sína.

Svona í lokin þá vil ég bara ég ítreka það að rekstrarumhverfi garðyrkjubænda hefur farið síversnandi, fyrst og fremst vegna hækkunar raforkuverðs. Ég hvet ríkisstjórnina til að fara í aðgerðir til að stöðva þessa þróun, bæði með því að fara í auknar virkjanir og koma í veg fyrir þessa samkeppni sem hefur orðið á þessum markaði og hefur leitt alla leið út í raforkuverð til smáframleiðenda sem er alls ekki vilji nokkurs hér inni, að ég tel.