Orkumál og staða garðyrkjubænda.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa mikilvægu umræðu sem fer hér fram og málshefjanda, hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur, fyrir að efna til hennar. Ekki síst held ég að það sé tilefni til að ræða þetta samkeppnisumhverfi. Hvers vegna skilar það ekki lægra verði og meira öryggi en áður? Hvers vegna skilar þetta núna, samkeppni fyrirtækja sem eru meira og minna allt opinber fyrirtæki, allt í einu stigvaxandi orkukostnaði fyrir heimili og grænmetisbændur, svo einhverjir séu nefndir til sögunnar? Það finnst mér vera rétt að ræða. Ég vil nefna það í þessari umræðu að þegar hér koma hv. þingmenn Framsóknar og vísa að einhverju leyti umræðunni á þennan meiri hluta hér, að hann sé ekki að hlusta á þær tillögur sem koma — við stöndum, frú forseti, frammi fyrir þeim vanda sem fráfarandi ríkisstjórn skildi eftir sig og við erum að leysa úr honum.
Það er ein spurning sem mér finnst að við þurfum að fá fram svar við með skýrari hætti hjá hæstv. ráðherra, fyrsta spurningin sem hv. málshefjandi bar upp: Hvernig bregðumst við við eftirspurnarvandanum? Það kom skýrt fram hjá hæstv. ráðherra að hann ætlar að bregðast hratt og vel við, það komi meiri orka inn á kerfið, hún verði flutt með betri hætti þannig að hún nýtist. En við þurfum líka að fá tæki til að bregðast við, að það verði ekki bara hlaðið á ný inn á kerfið sem veldur spennu. Ég held að þar þurfum við að taka að einhverju leyti samtalið um hvort ekki þurfi að taka raforkulögin upp hvað það varðar að við náum yfir þann mikilvæga þátt þannig að þegar við erum búin að koma með Hvammsvirkjun og bæta flutninginn og Villinganesvirkjun og alla þessa góðu virkjunarkosti sem eru í boði þá fáum við ekki nýjan vanda inn í kerfið.