156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

Orkumál og staða garðyrkjubænda.

[11:37]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka umræðurnar hérna í salnum. Mér er það ljúft og skylt að benda hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni á það að á síðasta kjörtímabili, sem ég þekki bara út frá því að vera embættismaður en ekki hluti af pólitík, voru veitt leyfi af síðustu ríkisstjórn fyrir fleiri megavöttum heldur en var gert tíu ár á undan. Þær virkjanir og sú orka sem mun koma inn á kerfið á þessu kjörtímabili er vegna þessara ákvarðana þannig að það er ekki alveg satt og rétt að setja málið upp svona þótt vissulega þurfi að halda áfram. Ég legg til að við sláum aðeins nýjan tón í orkumálin, horfum á þau þannig að við séum að vinna að þessu saman en ekki: ég lagði til, þið lögðuð til. Reynum aðeins að stilla saman strengi. Það er mikilvægt.

Mig langar til að koma inn á varðandi leyfisveitingarnar að það er vel að það eigi að finna leiðir til að auka skilvirkni og breyta ferlum með þeim hætti. Ég styð það og við fögnum því. Ég minni þó ráðherrann á verðmæti náttúru og að passa sig í þeim ferlum og breytingum að takmarka ekki aðgengi almennings, passa upp á verðmæti náttúru og halda í langtímasýn að öllu leyti.

Ég vil líka spyrja ráðherra hvaða framtíðarsýn hann hafi með aukinni orkuöflun. Hvernig viljum við að samfélagið okkar líti út eftir 10, 20, 30 eða 40 ár? Þannig framtíðarsýn höfðu okkar forverar þegar þeir fóru í iðnaðaruppbygginguna sem hefur leitt af sér þá stöðu sem við eigum í í dag með álver og iðnað á ólíkum stöðum á landinu. Við þurfum núna ekki bara að tala um aukna orkuöflun heldur þurfum við þessa skýru sýn. Því spyr ég ráðherrann: Hvaða framtíðarsýn er til staðar? Erum við að sjá raungerast leiðir í loftslagsmálum, nýsköpun og öðru eða ætlum við bara að horfa á hæstbjóðanda? (Forseti hringir.) Viljum við að Ísland verði verbúð fyrir bitcoin eða á framtíðarsýnin að vera einhver önnur? (Forseti hringir.) Ef hún á að vera einhver önnur, ef hún á að vera fjölbreytt og spennandi þá þarf pólitíkin og ráðherra málaflokksins að hugsa núna: Í upphafi skal endinn skoða. (Forseti hringir.) Hvaða hvata ætlum við að hafa til þess að þær leiðir sem við viljum fara náist?