Orkumál og staða garðyrkjubænda.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka öllum þeim hv. þingmönnum sem hafa tekið til máls í þessari mikilvægu umræðu og hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir sín greinargóðu svör. Það er ánægjulegt að heyra þann samhljóm sem er hér í þingsalnum um nauðsyn þess að bæta rekstrarumhverfi garðyrkjubænda og það sama á auðvitað við um almenning og önnur lítil og meðalstór fyrirtæki. Ég fagna því hvernig ráðherra og ríkisstjórn ganga hreint til verks með sérstökum stuðningi fyrir garðyrkjubændur sem auðveldar þeim að fara í nauðsynleg skipti á ljósaperum. Þetta skiptir máli.
Ég vil líka lýsa yfir mikilli ánægju með þær aðgerðir sem þegar hefur verið farið í af hálfu hæstv. ráðherra og þá áræðni sem hann sýnir í þessum málaflokki. Það er greinilegt að byggðaþróun og verðmætasköpun í landinu öllu er í forgangi, sem m.a. má glögglega sjá í átaksverkefninu Jarðhiti jafnar leikinn þar sem ráðherra ætlar að verja 1 milljarði kr. í átak til leitar og nýtingu jarðhita til ársins 2028. Takist að losa um 20% af þeirri raforku sem nú er nýtt til rafhitunar heimila, stofnana og fyrirtækja verður til orka án efnahagslegs og umhverfislegs kostnaðar sem fylgir nýrri virkjun. Einföldun á ferlum er reglulega jákvæð, ekki aðeins fyrir þau sem standa að framkvæmdum heldur einnig fyrir hagsmunasamtök í náttúruvernd sem hafa mikilvægu hlutverki að gegna þegar boðið er í þann mikilvæga línudans sem er þegar ákvarðanataka um val á besta virkjunarkosti hverju sinni fer fram. Þá er ráðherra greinilega með bæði augun á boltanum þegar kemur að því að tryggja almenningi og litlum og meðalstórum fyrirtækjum forgang að raforku og það verður spennandi að sjá hvernig það verður rammað inn í frumvarpið á haustmánuðum.
Að lokum vil ég ítreka þakkir mínar fyrir þessa góðu umræðu. Við Íslendingar eigum einstaka auðlind í hreinni sjálfbærri orku og það hvernig við nýtum hana mun móta framtíð okkar og komandi kynslóða.