Orkumál og staða garðyrkjubænda.
Virðulegur forseti. Þetta hefur verið góð umræða og það er jákvætt að finna samstöðuna í þessum sal, m.a. samstöðu um að ráðast í sértækan fjárfestingarstuðning við garðyrkjubændur. Þetta skiptir máli. Þetta skiptir máli upp á framleiðni, þetta skiptir máli upp á orkusparnað og ég held að fjárfestingarstyrkir eins og þessir séu, út frá hagrænum rökum, einhver skynsamlegasti ríkisstuðningurinn við atvinnulífið sem hægt er að hugsa sér.
Það er auðvitað hárrétt að það var farið í mikla aflaukningu á þeim virkjunum sem fyrir eru á síðustu árum. Það hefur hins vegar ríkt of mikill hægagangur þegar kemur að nýframkvæmdum og ég finn að það er samstaða í þessum sal um að bæta þar úr. Þar má byggja á ýmsum af þeim undirbúningi sem þegar hefur verið unninn, m.a. á síðasta kjörtímabili. En eins og ég fór yfir hér áðan er ný ríkisstjórn líka með meiri háttar lagabreytingar í vinnslu sem binda saman og skapa ákveðna samfellu í mörgum lagabálkum sem hafa að gera með raforkuöflun. Við erum að fara að lögfesta sérstaka raforkustefnu stjórnvalda, hún verður lögð fram; að rammaáætlun taki mið af þeirri stefnu, tekið sé mið af þeirri stefnu við röðun virkjunarkosta í rammaáætlunarferlinu og að kostir í orkunýtingarflokki rammaáætlunar njóti sérstakrar forgangsmeðferðar.
Vegna þeirrar umræðu sem hér hefur farið fram um verð á raforku um allt land þá vil ég líka að það komi fram að nú á næstu dögum geri ég ráð fyrir að það komi hér inn í bandormi með fleiri lagabreytingum mjög mikilvægar breytingar til að jafna þegar á þessu ári dreifikostnað raforku. Þetta skiptir máli. Það skiptir máli að bregðast hratt við þessu vegna þess að að hér hefur í raun ekkert verið gert síðan 2022, það var síðast þá sem dreifbýlisframlagið var hækkað og jöfnunargjaldið á móti. Þetta skiptir máli upp á raforkukostnað og dreifikostnað í hinum dreifðari byggðum.
Svona í lokin þá er auðvitað þessi fjárfestingarstuðningur við garðyrkjubændur ákveðin brú (Forseti hringir.) yfir í almennari aðgerðir sem maður gerir ráð fyrir að verði farið í samhliða endurskoðun á almennu stuðningskerfi landbúnaðar, (Forseti hringir.) sem heyrir auðvitað undir annan ráðherra og þar verður spennandi að sjá hvaða aðgerðir verður ráðist í.