156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

Orkuöryggi garðyrkjubænda.

[11:46]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Ég kem hingað upp til að taka undir með hv. þm. Ingibjörgu Isaksen. Það hefur sýnt sig undanfarnar vikur að hér er ekki einungis hæstv. ríkisstjórn að leggja fram hvert málið á fætur öðru frá fyrri ríkisstjórn undir yfirskini sérlega mikillar verkstjórnar og snaggaralegheita, sem er gott og vel, heldur tekur steininn einnig úr þegar fyrir lá mál frá hv. þm. Sjálfstæðisflokksins, Jóni Gunnarssyni, en hæstv. dómsmálaráðherra kom nokkrum dögum seinna og lagði fram samhljóða mál, eins mál, sem er auðvitað með miklum ólíkindum þegar nær væri að koma einfaldlega með breytingartillögu um þær örlitlu breytingar þar sem málin voru ekki samhljóða. Eins og ég segi: Ég hvet stjórnarliða til að bera einfaldlega virðingu fyrir þeirri staðreynd að stjórnarandstaðan er tæpur helmingur þingheims og hins lýðræðislega löggjafarvalds.