156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

Orkuöryggi garðyrkjubænda.

[11:48]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Ég sé mig knúna til að koma hér upp og bera af mér þær sakir sem hv. þm. Ingibjörg Isaksen er hér að saka mig um, að hafa tekið upp spurningar úr einhverju þingmáli Framsóknarflokksins sem ég hef reyndar ekki einu sinni lesið; ég verð að játa það þó að ég sé ekki stolt af því. En það er einfaldlega þannig að þau vandamál sem hér eru til umræðu, orkumálin og staða garðyrkjubænda, blasa við okkur öllum. Í aðdraganda kosninganna ferðuðumst við um kjördæmið, eðlilega, og áttum mörg samtöl við garðyrkjubændur, sjálfsagt sömu samtöl og þið hafið átt. Þannig að einhverjar lausnir sem þið eruð að bera á borð eru ekki endilega — ég vil segja að lausnirnar sem við erum hér að tala um og vandamálin sem blasa við eru ekki tekin upp frá ykkur, þau eru tekin upp frá þeim sem eru að eiga við þessi vandamál. Ég ætla algerlega að frábiðja mér svona málflutning.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að vísa hver til annars með fullu nafni og númeri og kjördæmi en ekki með 2. persónu fornafni.)