156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

Orkuöryggi garðyrkjubænda.

[11:49]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Ég vil nú koma hér upp og bera blak af hæstv. forseta. Mér finnst ómaklega að henni vegið, að verið sé að gera athugasemd við þetta mál undir þessum lið. En það sem er furðulegast er það að hv. þingmenn skuli ekki fagna því að það sé samhljómur með málum þeirra, að þau séu rædd og þeir fái hugsjónum sínum farveg hér í þinginu, og þeir eru að einhverju leyti móðgaðir. Ég átta mig ekki á því. En ég vil segja það að mér finnst nú kannski að hv. þingmenn Framsóknar ættu að líta aðeins í eigin barm. Þeir eru búnir að skilja hér við þannig að raforkubændur eiga ekki fyrir orkureikningnum og hér er orkuskortur. Og þegar nýir vendir koma hér inn og ætla að taka til þá eru þeir að einhverju leyti ósáttir. Mér finnst þetta skrýtið. Auðvitað þurfum við að taka til þegar skilið er svona eftir og fólk er skilið eftir í sárum með háa rafmagnsreikninga í boði Framsóknarflokksins.