Orkuöryggi garðyrkjubænda.
Virðulegi forseti. Ég verð nú að viðurkenna að mér þykir þetta ansi sérstök umræða eftir ansi góða umræðu sem átti sér hér stað undir sérstökum umræðum. Þannig er nú einfaldlega með mál að öllum þingflokkum gefst kostur á að óska eftir sérstakri umræðu og Framsóknarflokknum er í lófa lagið að óska eftir sérstakri umræðu við umhverfis-, loftslags- og orkumálaráðherra, vilji hann gera slíkt. Það er augljóst að það er mikil sátt um það mál sem um var rætt hér og ég tengi satt best að segja ekki alveg við þessa, hvað eigum við að kalla þetta, vinsældakeppni, hver er fyrstur með hugmyndina, þegar hugmyndirnar eru að lausn á vandamálum sem blasa við íbúum landsins. Líkt og hv. þm. Ása Berglind Hjálmarsdóttir kom inn á þá eru þetta ekki lausnir Framsóknarflokksins eða málefni Framsóknarflokksins og þingstörf virka ekki þannig að sá sem er fyrstur að vekja athygli á einhverju máli eigi það mál. Ég held að þetta snúist kannski frekar um það að Framsóknarflokkurinn þurfi að venjast nýrri stöðu, að vera ekki með framkvæmdarvaldið. Núna er ný ríkisstjórn tekin við sem er að leysa þau vandamál sem Framsóknarflokkurinn hefur vissulega talað um en ekki tekist að leysa.