156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

orkuöryggi garðyrkjubænda.

[11:56]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Þetta er merkileg umræða að mörgu leyti. En það er kannski ágætt og ég kom inn á það í ræðu áðan þegar við ræddum um orkumálin og stöðu garðyrkjubænda að ég er mjög ánægður með nýju Samfylkinguna í orkumálum. Ég var mjög óánægður með gömlu Samfylkinguna í orkumálum. Afstaðan breyttist bara fyrir tveim, þrem árum. Hún gjörbreyttist. Við erum að tala um allt annan flokk. Það er ein af ástæðunum fyrir því að hér tafðist allt. Það tók okkur níu ár að klára ramma 3, sem hæstv. fyrrverandi ráðherra málaflokksins, Guðlaugur Þór Þórðarson, kom að og við í hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Það þýðir ekki að tala um núið og gleyma algjörlega fortíðinni, hvernig pólitíkin var rekin í þessum þingsal fyrir örfáum mánuðum síðan, eins og hjá gömlu Samfylkingunni. Þannig að það er bara rétt að benda á staðreyndir máls, hvað við höfum verið að eiga við hérna árum saman. Við getum ekki bara verið — þó að það sé mikið af nýjum hv. þingmönnum hér í þingsal þá er ekkert sagan farin sem var tekin fyrir í þessum þingsal og í nefndum (Forseti hringir.) Alþingis undanfarin ár. Fólk ætti að þekkja það betur. Ég er ánægður með orkumálin og þróunina. (Forseti hringir.) Við höfum lagt margt til á síðasta kjörtímabili varðandi orkumálin og ég er ánægður með átak núverandi ráðherra sem snýr að orkuleitinni (Forseti hringir.) en það er byggt á gömlu, bara því sem byrjaði fyrir tveim árum. Þetta er nákvæmlega sama mál. Þannig að þetta er ekkert flóknara en svo.