orkuöryggi garðyrkjubænda.
Frú forseti. Þetta er um margt áhugaverð og góð umræða og held ég svolítið mikilvægt fyrir okkur hér að eiga þetta samtal, einmitt um skotgrafir og um það hvernig við högum okkur hér í okkar þingstörfum í minni hluta og meiri hluta. Ég hef reynslu af því að starfa í minni hluta í sjö ár, þó bak við tjöldin, og veit að ýmislegt sem núverandi þingmönnum minni hlutans finnst skrýtið er eitthvað sem við upplifðum alla daga, alltaf í sjö ár. Það er eðli þess að vera í meiri hluta og minni hluta. Ég hins vegar er þannig gerð að ég hef mikinn áhuga á samtali og samstarfi og ég tel að við getum gert miklu betur í því að taka undir góð mál frá hvort öðru, hvort sem það er minni hluta eða meiri hluta, og festast ekki í þessum skotgröfum. Ég sat hér í vikunni í kærleikshring með öðrum þingmönnum, sem var frábær, þar sem við ræddum málin og horfðumst í augu. Það er vegna Minningarsjóðs Bryndísar Klöru sem búið er að efna til þessa samtals. Ég held að það sé mikilvægt fyrir okkur hér að eiga þetta samtal en muna það líka að hér voru hrein stjórnarskipti. (Forseti hringir.) Þó að það sé kannski skrýtið fyrir suma flokka að vera ekki lengur með framkvæmdarvaldið þá er þetta bara staðan. Og auðvitað höldum við áfram með góð mál, að sjálfsögðu, þó það nú væri.